Collector
Hljóðrás Björgunarafreksins við Látrabjarg komin í leitirnar eftir áratugi | Collector
Hljóðrás Björgunarafreksins við Látrabjarg komin í leitirnar eftir áratugi
Fréttastofa RÚV

Hljóðrás Björgunarafreksins við Látrabjarg komin í leitirnar eftir áratugi

Upprunaleg hljóðrás heimildarmyndarinnar Björgunarafrekið við Látrabjörg kom nýverið í leitirnar eftir að hafa verið talin glötuð í tæp 80 ár. Þjóðskjalasafn Íslands og Kvikmyndasafn Íslands hafa nú undirritað samkomulag um varðveislu hljóðskrár kvikmyndarinnar, sem er með allra merkilegustu heimildarmyndum þjóðarinnar. Kvikmyndasafnið varðveitir upprunalega gerð Björgunarafreksins við Látrabjarg og nú stendur til að leggja upprunalegu hljóðrásina, sem er af stálþræði, við hana. Við það fæst útgáfa af myndinni sem ekki hefur sést, eða heyrst, í um 77 ár, að undanskildum tíu mínútum sem glatast hafa af þræðinum. Stórmerkileg heimildarmynd Björgunarafrekið við Látrabjarg rekur hetjudáðir meðlima í Björgunarfélaginu Bræðrabandinu sem björguðu tólf af fimmtán skipbrotsmönnum af breska togaranum Dhoon sem strandað hafði undir Geldingarskorardal við Látrabjarg 12. desember 1947. Þórður Jónsson á Látrum, sem tók þátt í aðgerðinni, lagði ári síðar til við Slysavarnarfélag Íslands að björgunin skyldi sviðsett og kvikmynduð. Slysavarnarfélagið var efins með hugmynd Þórðar enda ljóst að slíkt verkefni myndi kosta töluverðar fjárhæðir. Óskar Gíslason kvikmyndagerðarmaður var hins vegar sannfærður um að Þórður hefði rétt fyrir sér og að björgunarafrekið yrði að reyna að kvikmynda. Svo áhugasamur var Óskar um gerð myndarinnar að hann bauðst til að vinna að henni launalaust og að Slysavarnarfélagið myndi aðeins greiða kostnað hans og uppihald við framleiðsluna. Kvikmynduðu björgun annars togara Óskar hélt nokkrum sinnum vestur árið 1948 til að taka upp myndefni fyrir Björgunarafrekið við Látrabjarg. Þórður á Látrum undirbjó tökurnar og kallaði saman þá björgunarmenn sem áttu að koma fram í myndinni. Það er raunar hálfótrúlegt hvernig Óskar, Þórður og björgunarmennirnir áttu eftir að „sviðsetja“ björgun skipverja breska togarans Dhoon. „Það er sérstaklega áhugavert við hana, myndina sjálfa, að þegar þeir voru að kvikmynda hana þá voru þeir við vetrartökur og þurftu að gera pásu á þeim af því að það kom vont veður. Í þessu vonda veðri þá strandaði annað skip við mjög svipaðar aðstæður, þó ekki á sama stað, sem björgunarmennirnir þurftu að fara og hjálpa. Óskar Gíslason, kvikmyndagerðarmaðurinn, fór með í þessa björgun. Hann tók hana upp, sem var algjört einsdæmi á þessum tíma,“ segir Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur varðveislu og rannsókna á Kvikmyndasafni Íslands, í viðtali við fréttastofu. Síðara skipið var annar breskur togari, Sargon, en það var í desember 1948 sem hann strandaði við Ísland. Sú björgunaraðgerð gekk að vísu ekki eins vel og árið áður, aðeins sex af sextán skipverjum komust lífs af, en það er björgunin sem er í kvikmyndinni. Hljóðrásin var talin glötuð Óskar Gíslason fékk Þórð á Látrum til að lýsa björgunaraðgerðinni við Látrabjarg fyrir upprunalega útgáfu heimildarmyndarinnar sem kom út árið 1949. Hljóðið var tekið upp á stálþráð svokallaðan sem hefur verið týndur í hátt í áttatíu ár. „Stálþráðurinn sem fannst núna nýverið var í raun upprunalega hljóðrásin fyrir kvikmyndina og hún var sýnd með þessari hljóðrás þegar hún var fyrst í sýningu 1949. Svo er gerð önnur hljóðrás sem Þjóðverjar gera og gefa Íslendingum, nýja íslenska talsetningu á myndinni, og þá týnist þessi upprunalega hljóðrás. Það er hætt að nota hana, hún er ennþá bara á þessum stálþræði, og hverfur,“ segir Gunnar Tómas. „Hún finnst aftur á Þjóðskjalasafninu núna þar sem þau voru að skoða skjöl frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar finnst sem sagt hljóðrásin, þessir stálþræðir, bara meðal skjala sem er alveg ótrúlegur fundur,“ segir Gunnar Tómas. „Við nýlega yfirferð á hljóð- og myndefni í vörslu Þjóðskjalasafns var stálþráður með hljóðskrá færður á stafrænt form. Hljóðskráin var merkt „Björgunarafrekið við Látrabjarg“ og reyndist það vera hljóðrásin með upprunalegu kvikmyndinni Björgunarafrekið við Látrabjarg frá 1949, en hljóðskráin barst á Þjóðskjalasafn með skjölum og gögnum Slysavarnafélags Íslands. Frumrit kvikmyndarinnar er hins vegar varðveitt í Kvikmyndasafni. Söfnin tvö hafa nú gert samkomulag um að sameina mynd og hljóð með afhendingu hljóðrásarinnar til Kvikmyndasafns Íslands til varðveislu,“ segir í tilkynningu frá Þjóðskjalasafni um fundinn merkilega. Hér má sjá myndbrot úr Björgunarafrekinu við Látrabjarg með upplestri Þórðar frá Látrum, hljóð og mynd sem nú eru sameinuð eftir nær 80 ára fjarveru. Áhugasamir geta lesið nánar um heimildarmyndina á vef Kvikmyndasafnsins , en Gunnar Tómas Kristófersson hefur ritað grein um hana. Stálþráður, með upphaflegri hljóðrás Björgunarafreksins við Látrabjarg, finnst nýverið í fórum Þjóðskjalasafns Íslands meðal skjala frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Hljóðið var talið glatað í fjölda áratuga.

Go to News Site