Collector
Hátt í fjögur hundruð burtfluttir Grindvíkingar vilja kjósa í bænum | Collector
Hátt í fjögur hundruð burtfluttir Grindvíkingar vilja kjósa í bænum
Fréttastofa RÚV

Hátt í fjögur hundruð burtfluttir Grindvíkingar vilja kjósa í bænum

Grindvíkingar sem voru með lögheimili í bænum fyrir rýmingu 10. nóvember 2023 gátu óskað sérstaklega eftir því að fá að kjósa í bænum í komandi kosningum þrátt fyrir að vera fluttir í annað sveitarfélag. Alls sóttu 379 manns um þessa undanþágu en umsóknarfrestur rann út um mánaðamótin. Kjartan Friðrik Adólfsson formaður kjörstjórnar Grindavíkur segir þetta vera fólk sem vilji hafa áhrif á framtíð bæjarins og hafi mögulega hug á því að koma til baka á einhverjum tímapunkti. „Þetta er til að gefa fólki sem hefur þurft að flytja lögheimili útaf skólagöngu og annað slíkt hjá börnum að gefa því fólki tækifæri á því að hafa áhrif á og móta framtíð Grindavíkur eftir kosningar sem það hefði annars ekki haft,“ segir Kjartan. Frestur til að skila inn framboði vegna komandi kosninga rennur út á föstudag. Tveir flokkar hafa þegar kynnt sína framboðslista, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Miðflokkurinn, sem fékk flest atkvæði í bænum í síðustu kosningum, ætlar að kynna sinn framboðslista á næstu dögum. Kjördeildin verður í grunnskólanum í Grindavík en einnig er búið að gera ráðstafanir ef aftur þarf að rýma bæinn. „Við erum búnir að gera ráðstafanir að hafa varakjördeild á Ásbrú í húsnæði Sambands sveitarfélaga líkt og við gerðum við alþingiskosningar síðust og forsetakosningar,“ segir Kjartan.

Go to News Site