Collector
Óraði ekki fyrir því að hann myndi sjálfur ferðast sem tónlistarmaður | Collector
Óraði ekki fyrir því að hann myndi sjálfur ferðast sem tónlistarmaður
Fréttastofa RÚV

Óraði ekki fyrir því að hann myndi sjálfur ferðast sem tónlistarmaður

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson skaut óvænt upp kollinum í þættinum Góðir Íslendingar á RÚV um síðustu helgi þar sem hann keppti í spurningakeppni um Eurovision og tók lagið Think About Things við góðar undirtektir. Hann hefur látið nokkuð lítið fyrir sér fara undanfarið en eftir ellefu ár í Berlín í Þýskalandi er hann fluttur heim og hefur sest að í Hveragerði. Undanfarin ár hafa verið viðburðarík fyrir tónlistarmanninn sem sendi nýlega frá sér lagið Hot Damn og leggur drög að tónleikaferð um Bandaríkin í haust. Hann leit við í Morgunútvarpið á Rás 2 og ræddi ferilinn, hvernig það kom ekki að sök að Eurovision-keppninni skyldi hafa verið frestað árið 2020 og hvernig hann gat komist hjá því að festast í þeirri kreðsu sem oft verður í kringum þá keppni. Það var stór ákvörðun að flytja aftur heim til Íslands eftir svo langa dvöl í Berlín en Daði segir þau hjónin hafa ákveðið það fyrir allmörgum árum að þau vildu fara heim. „Tíminn lengdist alltaf aðeins en sjö árum áður en við fluttum heim vorum við búin að segja: Förum heim eftir þrjú ár.“ Hann hafði upphaflega flutt út til að fara í tónlistarskólann dBs Music að læra upptökustjórn og hljóðvinnslu, tveimur árum eftir að hann tók þátt í og sigraði Músíktilraunir með hljómsveitinni RetRoBot. Lífið í Berlín hafi verið mjög ljúft og hann sakni margs við borgina, aðallega vina en þó sérstaklega veðurfarsins. „Þetta er fyrsti veturinn á Íslandi í ellefu ár og það er hresst. Það er þó allavega orðið bjart núna.“ Árið 2017 tók hann fyrst þátt í Söngvakeppninni og byrjaði þá að vinna við tónlist af alvöru. Þá gat hann farið heim til Íslands á sumrin og um jólin og tekið vinnutarnir, farið svo aftur til Berlínar og lifað á þeim launum. „Því það kostaði allt helmingi minna. Það er aðeins búið að breytast núna en það var mjög ódýrt þegar ég byrjaði.“ Langar að vinna meira með öðru fólki Þau fjölskyldan ákváðu að kaupa sér hús í Hveragerði sem þau segja vera á milli þess að vera í „bænum þar sem mest er að gerast á þessu landi“ og foreldra þeirra beggja sem búa í Ásahreppi og á Skeiðunum. „Við vorum ekki alveg til í að fara í full on sveit en ekki alveg tilbúin að koma í Reykjavík heldur. Það er bara mjög rólegt í Hveragerði, við keyptum okkur hús og erum með garð. Það er bara draumurinn, við vorum að fá okkur kött.“ Það skiptir nefnilega engu máli hvar Daði býr vegna þess að hann vinnur mest megnis sjálfur og gerir út frá heimili sínu. Hann er nýlega búinn að koma sér upp góðu hljóðveri í bílskúrnum og hlustendahópur hans er mikið til erlendis. „Ég finn þó aðeins að mig langar að fara vinna meira með fólki. Ég er svolítið mikið einn inni í stúdíói akkúrat núna en ég er að fara að breyta því,“ segir Daði sem langar til að fá fleiri með sér í ferlið og hafa gaman. „Ég opnaði svolítið fyrir það með plötu sem ég er að fara gefa út í maí. Eiginlega öll lögin þar eru samin með öðru fólki, fyrir utan eitt.“ Á hans fyrri plötu, I Made An Album, kom nánast enginn annar nálægt ferlinu. „Ég var meðvitað að taka fleira fólk inn núna.“ Þegar Daði Freyr byrjaði í tónlistarnámi sínu sá hann ekki fyrir sér að hann myndi starfa sem tónlistarmaður sjálfur heldur búa til músík fyrir aðra. Þegar lagið hans Think About Things sprakk út gat hann hugsað ferilinn upp á nýtt. Tónlistarmyndbandið við Think About Things það sem sprakk út Í október heldur Daði í sitt fimmta Bandaríkjaferðalag þar sem hann kemur fram á 19 tónleikum. Síðast þegar hann fór í slíkt ferðalag hélt hann 27 tónleika sem hann segir hafa verið heldur mikið. Eins hefur hann ferðast um Evrópu sex sinnum. Daði skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann átti að vera fulltrúi Íslands í Eurovision árið 2020 með laginu Think About Things. Honum hefur tekist merkilega vel að nýta sér þær vinsældir til að koma sér á framfæri. Bandaríkjamenn fylgjast þó ekki mikið með Eurovision-keppninni og því vekur athygli að hann hafi náð að mynda sér svo dyggan áheyrendahóp þar. „Think About Things-vídjóið er svolítið það sem byrjaði þetta allt saman og fleytti mér hressilega áfram. Það er ástæðan fyrir því að ég get farið til Bandaríkjanna,“ segir Daði vegna þess að tónlistarmyndbandið fór á flug og voru stórstjörnur á borð við Jennifer Garner að dansa við lagið á samfélagsmiðlum. Vildi ekki festast í Eurovision-búbblu Daði segist hafa verið mjög meðvitaður um að koma sér undan því að festast í Eurovision-búbblu, eins og svo margir listamenn sem ná langt í þeirri keppni lenda í. Þá koma þeir nær eingöngu fram á samkomum tengdum keppninni. „Ég hef ekki farið í eitt einasta Eurovision-partí í rauninni.“ Það hafi því ekki komið að sök að keppninni var frestað árið 2020 vegna heimsfaraldurs sem margir vilja meina að hafi haft af honum sigurinn. „Fyrir mér var það bara fínt. Það var ekkert að því,“ segir hann og hlær. Þar hafi líka spilað inn í að hann hafi ekki þurft að hætta að búa til tónlist þó svo að hann væri í einangrun því hann getur unnið svo mikið sjálfur. „Ég þurfti ekkert að hætta og ég stoppaði ekkert. Á meðan flestir aðrir þurftu kannski að setja hlutina á pásu þá gat ég bara verið á fullu að dæla einhverju út að heiman.“ Þegar Daði Freyr byrjaði í tónlistarnámi sínu sá hann ekki fyrir sér að hann myndi starfa sem tónlistarmaður sjálfur heldur búa til músík fyrir aðra. Þegar lagið hans Think About Things sprakk út gat hann hugsað ferilinn upp á nýtt. Datt ekki í hug að hann yrði sjálfur á tónleikaferðalagi um heiminn Hann segist ekki hafa gert ráð fyrir því að lagið Think About Things myndi springa svo mikið út og að hann skyldi ná slíkum vinsældum. Hugmyndin hafi verið að hann gæti keppt með lagið og mögulega farið að koma fram á Eurovision-tengdum viðburðum en um leið og honum varð ljóst að þess þyrfti ekki gat hann nálgast tónlistina á annan hátt. „Þá gat ég hugsað þetta allt öðruvísi og hugsað ferilinn upp á nýtt.“ Lagið er komið með 167 milljónir spilana á Spotify og hafa vinsældir þess gefið Daða frelsið til að leika sér þegar kemur að tónlistarsköpuninni og gera nákvæmlega það sem hann langar að gera. „Þegar ég fór í skólann 2014, tveimur árum eftir að ég var í Músíktilraunum, þá var draumurinn smá að vera með mitt eigið stúdíó sem væri fullt af synthum og ég gæti fengið fólk til að koma og vinna sína tónlist á græjurnar sem ég myndi eiga. Þá væri ég allavega að vinna í tónlist og búa hana til.“ „Mér datt það ekki endilega í hug að ég væri að fara að túra en ég er bara mjög til í það.“ Fram undan er rólegt sumar hjá Daða sem ætlar að taka sér almennilegt sumarfrí í fyrsta sinn í langan tíma. Hann sér fyrir sér að grilla mikið í Hveragerði ásamt því að koma fram á tónlistarhátíð í Hollandi í sumar og Sólmyrkvahátíðinni hér á Íslandi. „Ég er reyndar að íhuga að taka lítinn kósí túr á Íslandi. Ég er ekki búinn að ákveða það en það eru góðar líkur á því,“ segir hann svo að lokum.“ Þegar Daði Freyr byrjaði í tónlistarnámi sínu sá hann ekki fyrir sér að hann myndi starfa sem tónlistarmaður sjálfur heldur búa til músík fyrir aðra. Þegar lagið hans Think About Things sprakk út gat hann hugsað ferilinn upp á nýtt. Rætt var við Daða Frey Pétursson í Morgunútvarpinu á Rás 2. Viðtalið má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Go to News Site