Fréttastofa RÚV
Bandaríkjaforseti segir góða möguleika á því að Bandaríkin semji um frið við Íran á morgun. 48 tíma frestur sem hann gaf írönskum stjórnvöldum til að semja um frið eða opna siglingaleiðina um sundið er brátt á enda. Fyrr í dag hét hann því að Íranar eigi eftir að búa í helvíti opni þeir ekki Hormússund. Í morgun sagði hann hermanninn, sem var bjargað eftir að orrustuþota sem hann var í var skotin niður í Íran á föstudag, alvarlega slasaðan og að íranskar hersveitir hefðu verið nálægt því að ná til hans áður en honum var bjargað. „Opnið helvítis sundið, brjáluðu drullusokkar“ Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Írana brjálaða skíthæla og hótaði öllu illu í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag opni þeir ekki Hormússund. Þann 27. mars gaf hann Írönum tíu daga til þess að bregðast við, með því að opna sundið eða semja um frið. Fresturinn rennur út á morgun. Í færslunni á Truth Social sagði hann þriðjudaginn verða dag orkuvera og brúa í Íran. Þar vísaði hann til árása á mikilvæga innviði í Íran og brú sem Bandaríkjamenn og Ísraelar sprengdu í Karaj, vestan við höfuðborgina Tehran, á fimmtudag. „Opnið helvítis sundið, brjáluðu drullusokkar, eða þið eigið eftir að lifa í helvíti – HORFIÐ BARA!“ sagði Trump í færslunni. Mizan, fjölmiðill tengdur íranska dómskerfinu, svaraði yfirlýsingu Bandaríkjaforseta og sagði staðfestu og mótspyrnu Írans hafa ýtt Trump að brami brjálæðis. Miðillinn sagði forsetann hafa móðgað Írana með ógeðslegu orðbragði. Eftir þetta fór Trump í viðtal á Fox News þar sem hann sagði að góðar líkur væru á því að Bandaríkin og Íran kæmust að friðarsamkomulagi eða samkomulagi um opnun Hormússunds á morgun. „Ég tel að það séu góðar líkur á morgun, þeir eiga í samningaviðræðum núna. Ef þeir ná ekki samningum og það fljótt íhuga ég að sprengja allt í loft upp og taka yfir olíubirgðir þeirra.“ Kapphlaup upp á líf og dauða Hundruð bandarískra hermanna tóku þátt í björgunaraðgerð í nótt þar sem hermanni úr áhöfn F15 orrustuþotu, sem Íranar skutu niður á föstudag, var bjargað. Trump segir herinn hafa unnið einstakt björgunarafrek og að Íranar hafi verið nálægt því að ná til hans áður en honum var bjargað. Erlendir fjölmiðlar hafa rætt við heimildarmenn innan hersins í dag og reynt að mála mynd af því sem gerðist. Íranar skutu flugvélina niður í suðvesturhluta landsins á föstudag. Tveir hermenn voru um borð í henni, flugstjóri og ofursti. Hermennirnir náðu báðir að skjóta sér úr flugvélinni áður en hún hrapaði til jarðar. Bandaríkjaher náði að bjarga flugstjóranum en ofurstinn særðist þegar hann skaut sér úr vélinni og ekki náðist að bjarga honum. Segja má að kapphlaup upp á líf og dauða milli Bandaríkjanna og Írans hafi hafist þá um hvort þeirra yrði fyrr til að ná til hermannsins. CBS-fréttastofan hefur eftir embættismönnum innan bandaríska hersins að hann hafi verið einn í meira en sólarhring og falið sig í fjalllendi. The New York Times segir herinn ekki hafa vitað um staðsetningu hermannsins fyrst um sinn en að leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, hafa fundið hann á endanum. Samkvæmt bandaríska miðlinum Axios setti leyniþjónustan af stað herferð innan Íran með fölskum upplýsingum um að hermaðurinn væri fundinn, til að plata íranskar hersveitir á jörðu niðri, á meðan hún fann staðsetningu hermannsins. Bandarískar herflugvélar vörpuðu sprengjum og skutu á íranskar hersveitir til að halda þeim frá staðsetningu hermannsins þegar sérsveit hersins var að nálgast hann. New York Times hefur eftir herforingja að þeir hafi skotið úr vopnum sínum til að halda hersveitunum í burtu en ekki tekið þátt í skotbardaga við þá. Hermaðurinn alvarlega slasaður Trump sagði herinn hafa unnið einstakt björgunarafrek, þegar hann tilkynnti að búið væri að finna og bjarga hermanninum á samfélagsmiðli sínum Truth Social í nótt. Hann sagði hermanninn hafa meiðst eitthvað en að hann jafni sig. Í færslu sem Trump setti inn á Truth Social í dag sagði hann íranskar hersveitir hafa verið nálægt því að handsama hermanninn þegar honum var bjargað. Hann sagði hann alvarlega slasaðan. Síðan tilkynnti hann um blaðamannafund um aðgerðina á morgun. Íranski herinn telur þetta þó ekki eins mikið afrek og bandarísk stjórnvöld segja. Herinn segist hafa eyðilagt tvær bandarískar herflugvélar og tvær herþyrlur sem hafi tekið þátt í björguninni. Íranski byltingarvörðurinn birti í morgun myndskeið sem hann segir sýna brak úr herflugvél í suðurhluta landsins. Bandarískir fjölmiðlar segja tvær herflugvélar, sem notaðar voru í aðgerðinni, en náðu ekki að taka á loft í Íran, hafa verið eyðilagðar til þess að íranski herinn kæmist ekki yfir þær. Engar vísbendingar um að stríðinu sé að ljúka Íranar gerðu árásir á olíuvinnslustöðvar í Kúveit og Bahrein í morgun og miklar skemmdir urðu á þeim. Sjö hið minnsta létust í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í morgun. Árásin í Kúveit átti sér stað í morgun. Kúveiska olíufélagið sagði að fjöldi innviða þess í olíuvinnslustöðinni hefði orðið fyrir skemmdum í árásinni. Margir eldar hafi brotist út í kjölfar hennar og valdið umtalsverðu tjóni. Í yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X segir fyrirtækið að slökkviliðsmenn séu að vinna í því að slökkva eldana og hindra að þeir dreifist frekar. Ekkert mannfall virðist hafa orðið samkvæmt fyrirtækinu. Þetta er ekki eina drónaárás Írana á Persaflóaríki í morgun því að jarðolíufélag í Bahrein sagði að drónaárás Írana hefði valdið eldsvoða á nokkrum starfsstöðum fyrirtækisins í morgun. Búið sé að slökkva eldana og enginn hafi látist í árásinni. Íranski byltingarvörðurinn lýsti yfir ábyrgð á árásunum í hádeginu og sagði að þetta væru hefndarárásir fyrir árásir Bandaríkjanna og Ísraels á mikilvæga brú í Karaj, borg vestur af höfuðborginni Tehran á fimmtudag. Byltingarvörðurinn sagði árásirnar verða kraftmeiri og umfangsmeiri verði ráðist á fleiri borgaraleg skotmörk í Íran. Ísraelsher heldur einnig áfram árásum á Líbanon og hið minnsta sjö létust í loftárásum hersins á suðurhluta landsins í morgun, þar á meðal fjögurra ára gömul stúlka. AFP-fréttaveitan hefur einnig eftir heilbrigðisstarfsfólki í höfuðborginni Beirút að eldflaugar Ísraelshers hefðu lent um hundrað metra frá sjúkrahúsi í borginni. Ísraelsher hafði varað við árásunum í morgun. Herinn hefur átt í hörðum átökum við Hezbollah-samtökin í Líbanon síðan stuttu eftir að stríðið braust út í lok febrúar. Samtökin eru hliðholl klerkastjórninni í Íran.
Go to News Site