Fréttastofa RÚV
Þingmaður sem vill fjölga niðurgreiddum ferðum fyrir börn sem þurfa að ferðast milli forráðamanna hefur efasemdir um Loftbrúarfyrirkomulagið. Kostnaður Vegagerðarinnar við niðurgreiðslurnar hækkar ár frá ári. Loftbrú er niðurgreiðsla ríkisins á flugfargjöldum til og frá Reykjavík fyrir fólk með lögheimili á Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi og í eyjum. Ríkið niðurgreiðir 40% af sex flugleggjum á mann. Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu um breytingu á Loftbrú þannig að ferðum verði fjölgað úr sex leggjum í tólf á ári fyrir börn sem ferðast þurfa á milli landshluta til foreldra eða forráðamanna. „Hvatinn að þessu er fólk sem ég hef verið í sambandi við sem er í þeirri stöðu að búa sitt hvoru megin á landinu kannski og eiga, það fólk sem ég hef verið að tala við, kannski eitt til þrjú börn, og það er bara orðið fjárhagslega mjög þungt fyrir þetta fólk að tryggja börnunum umgengni við báða foreldrana.“ Hann segist þekkja dæmi þess að börn hafi orðið af umgengni við foreldri vegna kostnaðar. Auðveld framkvæmd ef ríkisstjórnin leggst ekki gegn tillögunni Þorgrímur segist leggja þessa lausn fram vegna þess að það ætti að geta verið auðvelt að koma henni í framkvæmd. „Kerfið er til. Þó að það sé alls ekki fullkomið þá er það engu að síður til. Þetta gæti gengið mjög hratt fyrir sig ef ríkisstjórnin leggst ekki gegn þessu,“ segir Þorgrímur. „Ég sé ekki alveg fyrir mér flokk eins og Samfylkinguna sem kennir sig við félagshyggju og norræna velferð, eða Flokk fólksins sem hefur gert málefni barna að sínum, ég á bágt með því að trúa að þau leggist gegn þessu.“ Þú segir að kerfið sé ekki fullkomið, hvað áttu við með því? „Ég held að þær hafi nú raungerst þær áhyggjur sem við höfðum á sínum tíma þegar þetta kerfi var sett á að það myndi jafnvel ýta undir að flugfargjöld hækkuðu.“ Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn fréttastofu kemur fram að nýting á niðurgreiðslum með Loftbrú hafi aukist um 11% frá 2022 en kostnaður á sama tíma hækkað um 39%.
Go to News Site