Collector
Kvöldopnun í Oddsskarði þar sem hefur snjóað of mikið | Collector
Kvöldopnun í Oddsskarði þar sem hefur snjóað of mikið
Fréttastofa RÚV

Kvöldopnun í Oddsskarði þar sem hefur snjóað of mikið

Fjöldi fólks hefur nýtt veðurblíðuna um land allt til að renna sér á skíðum um páskana en í Oddsskarði fyrir austan hefur gengið illa að halda opnu vegna mikillar snjókomu. Í kvöld verður sérstök kvöldopnun sem lýkur með flugeldasýningu. Opið var í Oddsskarði á skírdag en lokað föstudaginn langa. Í gær var opið en fresta þurfti kvöldopnun og dagskrá sem henni fylgdi. Þá var opnun í dag frestað fram á kvöld, en þá býst Jóhann Ragnar Benediktsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja hjá Fjarðabyggð, við góðri stemningu. „Það er búið að snjóa náttúrulega alveg ótrúlega mikið hérna og svo tekur ákveðið marga klukkutíma að vinna þetta og þá er bara farið að snjóa aftur þegar troðarinn er kannski búinn að gera klárt svæðið,“ segir Jóhann. Hann segir útlit gott fyrir kvöldið og vonar að íbúar og gestir fjölmenni í fjallið. „Það lítur bara mjög vel út. Það er fullt af nýjum snjó og sólin er að ná í gegn akkúrat núna og svo verður flugeldasýning og bara gaman. Það er mikið af fólki á svæðinu og þessa daga sem við erum búin að vera opin er búið að vera mjög góð mæting og vonandi bara koma sem flestir í kvöld.“

Go to News Site