Fréttastofa RÚV
Stórhríð og slæmt ferðaveður verður á stórum hluta landsins á morgun. Töluverð umferð var til höfuðborgarinnar síðdegis í dag, líklega því ökumenn voru hvattir til að leggja fyrr af stað vegna veðurs. Appelsínugular viðvaranir taka gildi í nokkrum landshlutum um hádegi á morgun og verða í gildi fram á kvöld. Spáð er miklu hvassviðri og Vegagerðin hefur ákveðið að loka hringveginum á Suðurlandi í fyrramálið og Holtavörðuheiði um hádegi. Þá gæti vegum nærri höfuðborgarsvæðinu verið lokað með stuttum fyrirvara. Vegagerðin hvetur vegfarendur til að kanna aðstæður vel áður en lagt er af stað. Hægt er að fylgjast með færð og stöðu vega á Umferðin.is . Miklu hvassviðri er spáð á morgun og vindhviður gætu jafnvel toppað yfir 50 metra á sekúndu. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar telur skynsamlegt að fólk haldi fyrr heim af stað úr páskafríi frekar en að leggja í löng ferðalög á öðrum í páskum. Vegna óveðursins mun Holtavörðuheiði loka á hádegi á morgun og ólíklegt þykir að hún opni aftur fyrr en á þriðjudag. Vegirnir milli Heimalands við Markarfljót og Kirkjubæjarklausturs og frá Kirkjubæjarklaustri að Jökulsárlóni í Öræfasveit munu loka klukkan 7 í fyrramálið. Hríðarveður byrjar strax í fyrramálið Theódór Freyr Hervarsson veðurfræðingur segir að hvassviðrið muni ná hámarki seinni partinn á morgun. „Skilin koma hér upp að landinu í fyrramálið og hríðarveður byrjar strax þá á Suður- og Suðausturlandi. Mesta hríðarveðrið verður á Suðausturlandinu og auðvitað á öðrum heiðum annars staðar á landinu, þannig það má búast við byl nokkuð víða,“ sagði Theódór í kvöldfréttum sjónvarps. „En svo hvað varðar hvassviðrið sjálft þá er hægt að sjá staðbundna toppa í vindhviðum yfir 45 metra á sekúndu og jafnvel yfir 50. Þetta á við um nokkra staði á sunnanverðu landinu og á vestanverðu landinu. En víða hviður um og yfir 30 metra á sekúndu.“ „Skiptir öllu að ekki bíða of lengi með að óska aðstoðar“ Það getur verið ráð fyrir fólk sem ætlaði sér heimför eftir páskafrí að leggja heldur af stað núna í kvöld en að geyma ferðalagið til morguns. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, tekur undir þetta. „Ég held að það séu flest lögregluembætti landsins búin að vara við ferðalögum á morgun. Miðað við spána þá er það bara ekki skynsamlegt. Þannig að þeir sem geta farið af stað í kvöld, þeir sem eiga um langan veg að fara og sérstaklega yfir fjallveg, ættu bara að dóla sér í kvöld og eiga morgundaginn einhvers staðar í rólegheitum,“ sagði Jón Þór í sjónvarpsfréttum. En þeir sem fara af stað og lenda í vanda. Hvað eiga þeir að gera? „Það er alltaf bara sama – hringja í 112. Það er það sem skiptir öllu að ekki bíða of lengi með að óska aðstoðar. Bara hringja í 112 og bíða eftir að einhver komi til aðstoðar.“
Go to News Site