Collector
Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair | Collector
Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair
Fréttastofa RÚV

Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair

Icelandair hefur aflýst fjórum flugferðum á morgun og er það gert vegna veðurs. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Suðurlandi á hádegi á morgun vegna mikils hvassviðris og stórhríðar. Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, segir alþjóðaflug á áætlun í fyrramálið. Síðla morguns hafi áætlun tekið einhverjum breytingum. Fylgst verði með veðrinu og gerðar viðeigandi ráðstafanir. Samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar hefur flugum Icelandair til Kaupmannahafnar klukkan 10:45, til Amsterdam klukkan 10:50, til Stokkhólms kl. 11 og til Narsaruaq á Grænlandi kl. 16 verið aflýst. Þá hefur allnokkrum flugferðum verið flýtt eða seinkað. Flugvél Icelandair í óveðri.RÚV / Kristinn Magnússon

Go to News Site