Fréttastofa RÚV
Ásta Röfn vill helst vera alla daga í hesthúsinu og hún nýtti góða veðrið vel í dag. Þrátt fyrir að vera bara 5 ára hefur Ásta Röfn unnið til fjölda verðlauna. Hún ríður út langar leiðir en finnst skemmtilegast inni í reiðhöll. Ásta Röfn kallar ekki allt ömmu sína og í dag reið hún meðal annars út á hestinum Þór, sem er fyrstu verðlauna stóðhestur. Ásta Röfn er staðráðin í að verða hestakona þegar hún verður stór. Birkir Rafn, stóri bróðir Ástu Rafnar, var með henni í hesthúsinu í dag.
Go to News Site