Fréttastofa RÚV
Netlokun írönsku þjóðarinnar er nú orðin lengri en hjá nokkurri annarri þjóð í sögunni. Samkvæmt Netblocks , óháðum eftirlitshópi sem fylgist með netumferð í heiminum, hafa Íranir verið án internets í samfelldar 864 klukkustundir eða í að verða 37 daga. „Netlokun í Íran er nú lengsta lokun internetsins sem skráð hefur verið í nokkru landi og fer fram úr öllum sambærilegum atvikum í alvarleika nú þegar hún hefur sinn 37. dag eftir 864 klukkustundir,“ segir á vef Netblocks í færslu sem birtist í dag. Ekkert fjölmiðlafrelsi er í Íran og alþjóðlegir fjölmiðlar hafa takmarkaðan aðgang að landinu. Yfirvöld í landinu lokuðu fyrir veraldarvefinn 28. febrúar og þar hefur verið netlaust síðan. Á vef Netblocks segir að Íran sé fyrsta landið til að hafa verið með internet en tapað því eftir að það var fært yfir á sjálfstætt þjóðlegt netkerfi. Þó eru þjóðir, eins og Norður-Kórea, þar sem net hefur aldrei verið aðgengilegt almenningi og hefur þjóðin þannig verið einangruð í lengri tíma en Íranir.
Go to News Site