Fréttastofa RÚV
Ökumaður velti bíl á Hellisheiði í kvöld. Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um umferðaróhappið um 21:20. Einar Sigurjónsson aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi staðfestir þetta. Einar segir engan hafa slasast við bílveltuna. Sjúkrabíll hafi verið kallaður á vettvang en enginn þó verið fluttur á sjúkrahús. Hann segir að bílveltan eigi ekki að valda umferðartöfum á Hellisheiði. Samkvæmt myndskeiði frá vettvangi er töluverð bílaröð á heiðinni en fjöldi fólks er á heimleið úr páskafríi vegna óveðursins á morgun. Einar segir umferð þó heilt yfir hafa gengið vel í kvöld. Ökumaður valt bíl sínum á Hellisheiði.RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site