Collector
Björgun bandaríska flugliðans var gríðarflókin og kostnaðarsöm í peningum talið | Collector
Björgun bandaríska flugliðans var gríðarflókin og kostnaðarsöm í peningum talið
Fréttastofa RÚV

Björgun bandaríska flugliðans var gríðarflókin og kostnaðarsöm í peningum talið

Björgun bandaríska flugliðans úr fjalllendi Írans síðastliðna nótt var afar flókin aðgerð og verulega kostnaðarsöm. Hundruð sérsveitarmanna ásamt tugum orrustuþotna og þyrlna komu að verkinu ásamt leyniþjónustunni CIA og fundu hann þar sem hann faldi sig í fjalllendi. Tvær flutningaflugvélar sem áttu að flytja björgunarlið komust ekki á loft frá afskekktri herstöð í Íran og voru eyðilagðar svo þær féllu ekki í óvinahendur, samkvæmt umfjöllun miðla á borð við BBC og Reuters . Íransher segir tvær Hercules C-130 flutningavélar og tvær Black Hawk þyrlur hafa eyðilagst í aðgerðinni. Sé það rétt hleypur kostnaðurinn á hundruðum milljóna dala. Einnig hafi leitardróna verið grandað yfir Isfahan. BBC kveðst hvoruga söguna hafa getað staðfest. „Hann meiddist eitthvað, en mun jafna sig,“ skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti á Truth Social og kvaðst hafa skipað hernum að senda tugi flugvéla búna öflugustu vopnum veraldar til að heimta hermanninn úr helju. Maðurinn var fluttur til Kúveit undir læknishendur að sögn bandarískra embættismanna. F-15 orrustuþotan var skotin niður á föstudag og flugmennirnir þeyttu sér báðir út. Öðrum var bjargað samdægurs en hinum ekki fyrr en síðustu nótt, eins og áður sagði. Írönsk yfirvöld buðu umbun að jafnvirði átta milljóna króna , hverjum þeim sem finndi manninn þannig að Bandaríkjaher var í kapphlaupi við vopnaða Írana og tímann. Hann var „eltur af óvinum okkar, sem nálguðust hann óðfluga,“ skrifaði Trump. Bandarískir miðlar segja að flugliðinn, sem aðeins var vopnaður skammbyssu, hafi falið sig í klettaskoru og kveikt reglulega á rakningarboð sem auðveldaði leitarflokkum að hafa uppi á honum. Bandarískir miðlar sögðu hann loks fundinn rétt fyrir klukkan fjögur á páskanótt að íslenskum tíma. Allir hermenn hljóta þjálfun til að bregðast við aðstæðum sem þessum. Leyniþjónustan rakti ferðir mannsins og sendi líka út villuboð innan Íran um að maðurinn væri þegar fundinn. Meðan sérsveitirnar nálguðust manninn var sprengjum varpað að írönskum hermönnum og skotum hleypt að til að halda þeim fjarri. „Nokkrar flugvélar eyðilögðust,“ viðurkennir hershöfðinginn Frank McKenzie, fyrrverandi yfirmaður í miðstjórn Bandaríkjahers, í samtali við CBS en segir björgunina þess virði. „Það tekur kannski ár að smíða flugvél en minnst tvö hundruð að skapa þá hefð innan hersins að skilja engan eftir,“ sagði hann. William Fallon, aðmíráll á eftirlaunum, segir náttmyrkrið hafa hjálpað, enda séu bandarískir sérsveitarmenn þrautþjálfaðir í að starfa við slíkar aðstæður. Yfirmenn í Íransher segja allt hafa farið í handaskolum hjá Bandaríkjunum við björgunina og endurtaka yfirlýsingar um að hernaðaraðgerðin öll séu mistök fávíss forseta. Auk þess að flugvélar voru eyðilagðar hafi flugmenn annarra véla neyðst til að nauðlenda þeim. Nokkrir bandarískir greinendur hafa sagt tap F-15 orrustuþotunnar yfir írönsku landsvæði og eyðileggingu björgunarflugvélanna sýna fram á hversu takmarkaður máttur bandaríska flughersins raunverulega sé.

Go to News Site