Collector
Aukið viðbragð í Grindavík vegna veðurs og óvissu um eldgos | Collector
Aukið viðbragð í Grindavík vegna veðurs og óvissu um eldgos
Fréttastofa RÚV

Aukið viðbragð í Grindavík vegna veðurs og óvissu um eldgos

Viðbragðsaðilar verða með aukinn viðbúnað í Grindavík og kringum Svartsengi meðan óveðrið geisar, þar sem enn ríkir óvissa vegna jarðhræringa og landriss með mögulegri eldgosshættu, að því er segir í tilkynningu Almannavarna. Björgunarsveit verður í Grindavík og bætt í vakt slökkviliðsins. Almannavarnir ráðleggja ferðafólki og íbúum að kynna sér vel aðstæður í ljósi þess að flóttaleiðir frá bænum gætu lokast með stuttum fyrirvara. Einnig er fólk hvatt til að fylgjast með tilkynningum frá Veðurstofu Íslands , Vegagerðinni og Lögreglunni. Slæmt ferðaveður verður á stórum hluta landsins í dag, annan í páskum, spáð er austanstórhríð og hvassviðri. Appelsínugul viðvörun verður í gildi frá hádegi á Suðvesturlandi, Suður- og Suðausturlandi auk hálendisins en gul viðvörun annars staðar frá því snemma morguns. Icelandair hefur aflýst fjórum flugferðum vegna óveðursins. Þá hefur allnokkrum ferðum verið flýtt eða seinkað. Stefnt er að siglingu Herjólfs frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar klukkan sjö og til baka klukkan kortér yfir tíu. Seinni ferðir falla niður. Klukkan sjö verður vegum lokað á milli Heimalands við Markarfljót og Kirkjubæjarklausturs og frá Kirkjubæjarklaustri að Jökulsárlóni í Öræfasveit. Holtavörðuheiði verður lokað á hádegi og ólíklegt þykir að hún verði opnuð fyrr en á þriðjudag. Vegum nærri höfuðborgarsvæðinu gæti verið lokað með stuttum fyrirvara. Vegagerðin og Almannavarnir hvetja vegfarendur til að kanna aðstæður vel áður en lagt er af stað og að fara ekki á vanbúnum bílum. Fólki er einnig ráðlagt að hafa hlý föt, mat og drykk í bílnum ef tafir verða.

Go to News Site