Collector
Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur | Collector
Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur
Fréttastofa RÚV

Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur

Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins var drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu byltingarvarðarins sem birtist á samfélagsmiðlinum Telegram. Majid Khademi tók við forystu leyniþjónustunnar síðasta sumar eftir að forveri hans, Mohammad Kazemi, var drepinn í 12 daga átökum Írans og Ísraels síðasta sumar. Ekkert útlit er fyrir að átökum linni á næstunni. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið Írönum frest þar til annað kvöld til að opna fyrir skipaflutning um Hormússund; annars ætli Bandaríkjaher að gjöreyða orkuinnviðum og brúm í Íran. Íranski herinn sagði að árásum á borgaralega innviði í Íran yrði svarað með reiðarslagi. Friðarumleitanir hafa litlu skilað til þessa. Heimildir bandaríska miðilsins Axios herma að litlar líkur séu á að sátt náist um að leggja niður vopn; en að erindrekar Bandaríkjanna og Írana, auk milligöngumanna, reyni eftir fremsta megni að ná saman um skilmála 45 daga vopnahlés.

Go to News Site