Fréttastofa RÚV
Í dag fara síðustu leikir 32-liða úrslita í bikarkeppni karla í fótbolta fram. Alls eru fimm leikir á dagskrá og verður sýnt beint frá tveimur þeirra. Deginum lýkur svo með Bikarkvöldi þar sem öll mörkin úr viðureignunum 16 verða sýnd. Allar útsendingar dagsins eru á RÚV 2. Leikirnir tveir sem sýndir verða beint eru Grindavík gegn Keflavík klukkan 13:00 . Því næst verður Reykjavíkurslagur KR gegn Valsmönnum klukkan 17:00. Suðurnesjaslagurinn verður í knatthúsi Hauka og KR mun leika heimaleik sinn í Egilshöll. Bikarkvöld hefst svo beint að leik KR og Vals loknum. Aðrar viðureignir dagsins Fjölnir - HK - 13:00 ÍA - Haukar - 13:00 Grótta - Álftanes - 14:15 Á RÚV.is verður lifandi leikdagsvakt þar sem við fylgjumst með því helsta í leikjum dagsins. Við birtum svo öll mörkin að leikjunum loknum í leikdagsvaktinni og á Facebook síðu íþróttadeildar. Öllum leikjunum verða svo gerð góð skil í Bikarkvöldi þar sem sérfræðingar fara gaumgæfilega yfir málin.
Go to News Site