Collector
Íranar hafna vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael | Collector
Íranar hafna vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael
Fréttastofa RÚV

Íranar hafna vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael

Íranar hafa hafnað vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael. Ríkisfjölmiðill landsins, IRNA, greinir frá þessu. Samningamenn frá Pakistan ræddu við stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum í nótt og kynntu tveggja þrepa lausn í átt að friði. Tafarlausu vopnahléi yrði komið á og síðan yrði sest við samningaborðið. Í svari Írana, sem er í tíu liðum, hafi þeir hafnað vopnahléstillögunni og lagt áherslu á endanleg lok átakanna. Þeir vilji einnig regluverk um öruggar siglingar um Hormússund, bætur vegna skemmda á innviðum í landinu og afléttingu viðskiptaþvingana. Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf Írönum frest til miðnættis á þriðjudagskvöld til að semja um frið eða opna Hormússund, ella verði lagt til atlögu að orku- og samgönguinnviðum landsins. Trump sagði við fjölmiðla í Hvíta húsinu í dag að þetta væri mikilvægt skref en ekki nógu gott. Hann endurtók hótanir um árásir á innviði í Íran. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur staðið í rúman mánuð, síðan 28. febrúar þegar herir Bandaríkjanna og Ísraels gerðu loftárásir á Íran.

Go to News Site