Fréttastofa RÚV
Björgunarsveitir hafa sinnt margvíslegum verkefnum vegna óveðursins í dag. Hingað til hafa flest útköll verið á suðvestanverðu landinu þar sem veðrið hefur verið einna verst. Vegalokanir, foktjón og léleg færð eru helstu tilefni útkalla björgunarsveita það sem af er degi. Ökumenn lentu víða í vandræðum. Björgunarsveitir losuðu 10 til 15 bíla við Miðfell, austanvert við Þingvallavatn. Þó nokkuð margir á Þingvöllum komust ekki leiðar sinnar og björgunarsveitir fylgdu fólkinu til byggða. Einhverjir bílar, til dæmis húsbílar, voru skildir eftir, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Fjöldi fólks lenti einnig í vandræðum í Þrengslum, á Hellisheiði og Kjósarskarðsvegi. Björgunarfólk á Mývatni var boðað út til að aðstoða við að losa um 7 bíla við Biskupsháls og um 10 manns voru fluttir niður af fjallvegum á Tálknafirði og Bíldudal. „Á Suðurnesjum sinntu björgunarsveitir vegalokunum ásamt því að vera til taks í Grindavík vegna óvissu vegna landriss þar. Nú á sjötta tímanum var Þorbjörn í Grindavík svo boðuð út til óveðursaðstoðar í bænum,“ segir í tilkynningu Landsbjargar. Nokkuð var um útköll vegna foktjóns. Á Hellu og Hvolsvelli fuku þakplötur og klæðning af húsum. Á sjötta tímanum barst útkall vegna yfirvofandi foktjóns í Reykjanesbæ. Viðbúnaður vegna einkaflugvélar á Akureyri Björgunarsveitir hafa aðstoðað við sjúkraflutninga á suðvestanverðu landinu og voru einnig ræstar út þegar neyðarstigi var lýst yfir vegna mögulegrar vélarbilunar í einkaflugvél skömmu eftir flugtak frá Akureyrarflugvelli. Vélinni var lent án vandkvæða skömmu síðar.
Go to News Site