Fréttastofa RÚV
Rafmagni sló út víða á Suðurlandinu í kringum 20:00 í kvöld. Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets, segir eldingu að öllum líkindum hafa slegið niður í Búrfellslínu. Vegna höggs á kerfið hafi varnarbúnaður leyst út rafmagni. Þá segir Halldór að unnið sé að því að byggja kerfið svo rafmagn komist á aftur. Það verði að vonum sem fyrst. Á vef Landsnets segir að truflunin sé að mestu yfirstaðin. Í viðtali við fréttastofu segist Halldór ekki vita til þess að truflunin hafi áhrif á fjarskipti. Fréttastofu hafa þó borist ábendingar um að farsímanet hafi dottið í Helgafellshverfi Mosfellsbæjar. Í tilkynningu á Facebook-síðu HS Veitna segir að rafmagnslaust sé á Keflavíkurflugvelli en unnið sé að bilanagreiningu. Flugstöðvarbyggingin er á varaafli. Heitavatnslaust varð í Vestmannaeyjum vegna rafmagnsleysisins. Unnið er að því að koma heitu vatni aftur á í Heimaey. „Unnið að því núna að byggja kerfið upp aftur“ „Það er eldingaveður sem að gengur yfir landið núna, gengur eftir suðurströndinni og suðaustur eftir landinu og það bendir allt til þess að eldingu hafi slegið niður í Búrfellslínu. Við það kemur ójafnvægi á kerfið, eldingin hefur verið það stór, og þá er varnarbúnaðurinn í landskerfinu sem að gefur til kynna að eitthvað hafi gerst og leysir það út. Það eru bara varnarviðbrögð í kerfinu,“ segir Halldór í viðtali við fréttastofu. Líkja má varnarbúnaðinum við svokallað öryggi í rafbúnaði. „Það er unnið að því núna að byggja kerfið upp aftur og það tekur ekki langan tíma. Við vitum ekki til þess að það sé nein bilun sem hafi orðið til við þetta högg sem kom á kerfið heldur eingöngu truflun sem að varnarbúnaðurinn hefur skynjað og það er unnið að því bara í þessum töluðu orðum að byggja kerfið upp aftur þannig að rafmagn komist á aftur. Við vonum að það verði sem allra fyrst.“ Áhrif á stóriðju Truflunin hefur einnig áhrif á stóriðju. „Hún verður bara fyrir truflunum út af því að kerfið slær út. Þá er ekki næg orka í kerfinu til þess að skila til stóriðjunnar og þar af leiðandi leysir hún líka út, hennar varnarbúnaður,“ segir Halldór. Fréttastofu hafa borist ábendingar um að farsímanet hafi dottið út vegna rafmagnsleysisins. „Ég veit ekki til þess að það séu nein fjarskipti sem að hafa dottið út við þetta. Þetta er aðallega Suðurlandið sem að verður fyrir truflun út af þessu, af því þetta tengist virkjununum uppi í Þjórsártúnasvæðinu þar sem eldingin hefur komið niður.“
Go to News Site