Fréttastofa RÚV
DeAndre Kane.Mummi Lú Grindavík jafnaði metin í einvígi sínu gegn Njarðvík í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Staðan er nú 1-1 eftir 84-86 sigur þeirra gulklæddu. Njarðvík var 49-44 yfir í hálfleik en Grindavík átti sterkan þriðja leikhluta sem vannst 18-24. Að lokum sigruðu Grindvíkingar með tveimur. Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur hjá Njarðvíkingum með 30 stig og fimm fráköst. Jordan Semple var stigahæstur Grindvíkinga með 22 stig.
Go to News Site