Fréttastofa RÚV
Mosfellsbær að sumri. Rafmagnslaust var þar um nokkra hríð í kvöld.RÚV / Ragnar Visage Rafmagn er komið á gervallan Mosfellsbæ eftir bilun sem varði frá því á níunda tímanum í kvöld. Bilunin varð í aðveitustöð sem tengir hluta bæjarins sem hafði áhrif á hitaveituna. Í tilkynningu á vef Veitna segir að heitavatnsdælur komi smám saman inn og að eina til tvær klukkustundir taki fyrir þrýsting að byggjast upp að nýju á Kjalarnesi.
Go to News Site