Collector
WHO hættir brottflutningi særðra og sjúkra frá Gaza tímabundið | Collector
WHO hættir brottflutningi særðra og sjúkra frá Gaza tímabundið
Fréttastofa RÚV

WHO hættir brottflutningi særðra og sjúkra frá Gaza tímabundið

Dráp Ísraelshers á starfsmanni Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar verður til þess að engir veikir og særðir Palestínumenn verða fluttir til Egyptalands frá Gaza á hennar vegum þar til annað verður ákveðið. Framkvæmdastjórinn Tedros Adhanom Ghebreyesus greindi frá þessu á X. Ísraelskir hermenn skutu að sögn Al-Jazeera af handahófi á farartæki stofnunarinnar í Khan Younis, sem var að flytja almenna borgara milli staða. Ökumaðurinn lét lífið og læknir og sex farþegar særðust. Al-Jazeera segir atvikið hafa gerst nærri gulu línunni svokölluðu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kveðst ætla að fara ítarlega í saumana á málinu en frestar öllum flutningi sjúkra og særðra þangað til niðurstaða liggur fyrir. Heilbrigðisráðuneyti Hamas á Gaza segir að Ísraelsher hafi drepið á áttunda hundrað Palestínumanna frá því vopnahlé komst á í október. Ísraelsher hefur tilkynnt um dráp minnst fimm hermanna á sama tíma.

Go to News Site