Collector
Orðum prýddur hermaður sakaður um grimmileg morð í Afganistan | Collector
Orðum prýddur hermaður sakaður um grimmileg morð í Afganistan
Fréttastofa RÚV

Orðum prýddur hermaður sakaður um grimmileg morð í Afganistan

Orðum prýddur fyrrverandi ástralskur hermaður var handtekinn í morgun. Hann er sakaður um að hafa myrt fanga meðan hann þjónaði í Afganistan 2009 til 2012. Ástralskir miðlar hafa nafngreint manninn sem Ben Roberts-Smith. Hann hlaut Viktoríukrossinn, æðstu orðu landsins, fyrir hugprýði á vígvellinum og er álitinn stríðshetja. Krissy Barrett, yfirmaður alríkislögreglunnar, segir að Roberts-Smith bíði fimm ákærur fyrir stríðsglæpi og morð fyrir að hafa ýmist sjálfur skotið mennina til bana eða skipað undirmönnum sínum að gera það. Ástralskir miðlar báru Roberts-Smith sökum þegar 2018 Orðstír Roberts-Smith beið hnekki árið 2018 þegar hann í umfjöllunum ástralskra blaða var bendlaður við dráp á afgönskum föngum. Þar var staðhæft að hann hefði sparkað óvopnuðum almennum borgara fram af kletti og svo látið skjóta hann. Eins hafi Roberts-Smith tekið þátt í vélbyssuskothríð sem banaði fötluðum manni með gervifót, sem hafi loks verið notaður sem drykkjarílát. Umfjöllunin leiddi af sér yfirstandandi rannsókn á meintum stríðsglæpum ástralskra hermanna í Afganistan. Roberts-Smith hefur haldið fram sakleysi og höfðaði mál gegn þeim miðlum sem fyrst báru á hann sakir. Tæplega 40 þúsund ástralskir hermenn voru um tveggja áratuga skeið sendir til að taka þátt í aðgerðum Bandaríkjanna og NATÓ gegn talibönum og öðrum vígahópum í Afganistan. Rannsókn hefur staðið lengi yfir Nær allar stundir frá því að hermennirnir sneru aftur heim hefur athæfi þeirra verið undir smásjá lögregluyfirvalda. Rannsókn sem herinn sjálfur stóð fyrir 2020 leiddi í ljós að liðsmenn sérsveita hefðu „með ólögmætum hætti“, eins og það var orðað, drepið 39 almenna afganska borgara og fanga. Rannsóknin beindi einnig sjónum hersins að handahófskenndum aftökum, pyntingum og keppni meðal hermanna um hver banaði flestum. Þrýstingur jókst þá á ríkisstjórnina sem skipaði sérstakan rannsakanda til að ákveða hvort ákæra bæri starfandi og fyrrverandi hermenn.

Go to News Site