Collector
Margir vegir lokaðir fyrir norðan og austan | Collector
Margir vegir lokaðir fyrir norðan og austan
Fréttastofa RÚV

Margir vegir lokaðir fyrir norðan og austan

Samgöngur eru úr skorðum víða á austanverðu landinu og inn á Norðurland þennan morguninn. Vegurinn um Öxnadalsheiði er lokaður en þar er unnið að mokstri. Ófært er á Tjörnesi, Hólaheiði, Raufarhafnarvegi, Brekknaheiði og Sandvíkurheiði. Vegirnir um Vopnafjarðarheiði, Mývatnsöræfi, Möðrudalsöræfi og Hófaskarð eru lokaðir. Ófært er á Vatnsskarði eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Einnig er ófært á Fagradal og Fjarðarheiði en þar er unnið að mokstri. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru að kanna aðstæður á vegum á Vestfjörðum. Ófært er um Fróðárheiði en unnið er að mokstri. Nýjustu upplýsingar um færð má alltaf finna á umferðarvef Vegagerðarinnar.

Go to News Site