Collector
Vestfirðingum gafst tækifæri á að koma með hugmyndir inn í dagskrá Rásar 2 | Collector
Vestfirðingum gafst tækifæri á að koma með hugmyndir inn í dagskrá Rásar 2
Fréttastofa RÚV

Vestfirðingum gafst tækifæri á að koma með hugmyndir inn í dagskrá Rásar 2

„Við ákváðum að prófa að fara með Hugmyndadaga RÚV til fólksins í stað þess að láta fólk koma til okkar í Efstaleiti,“ segir Sigrún Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hugmyndadaga, um viðveru sína í aðdraganda Aldrei fór ég suður á Ísafirði nú um páskana. Hugmyndadagar RÚV hafa farið fram tvisvar á ári í Útvarpshúsinu við Efstaleiti síðan 2017. Á þeim tíma hafa mörg hundruð hugmynda borist og tugir þeirra orðið að dagskrárefni í útvarpi og sjónvarpi. Tilgangurinn er að halda virkum tengslum við fólkið í landinu og taka púlsinn á því hvað fólk vill heyra og sjá. „Kristján Freyr rokkstjóri á Aldrei fór ég suður bauð okkur Sigga Gunnars aðstöðu í búðinni sinni, þangað sem flestir hátíðargestir eiga erindi til að kaupa „húfulit ársins“ og annan skemmtilegan Aldrei-varning, og þar buðum við gestum og gangandi að tylla sér hjá okkur,“ segir Sigrún. „Gjörningurinn skilaði kannski ekki mörgum hugmyndum í þessari fyrstu tilraun utan höfuðborgar, en við Siggi erum sannfærð um að fræinu hafi nú verið sáð, það muni spíra með fleiri heimsóknum á landsbyggðina og mun fræið á endanum blómstra til þáttagerðar. Ef við höldum áfram að sýna okkur á fjölmennum viðburðum eins og Aldrei fór ég suður, munu heimamenn með tímanum þora að nálgast okkur og viðra við okkur sínar hugmyndir og leggja þannig beint til þess hlaðborðs dagskrárefnis sem RÚV býður upp á ár hvert.“ Netfang hugmyndadaga er hugmyndadagar@ruv.is og þangað er hægt að senda fyrirspurnir um fyrirkomulagið allt árið um kring.

Go to News Site