Collector
Hlaut 13 ára dóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni og sambýliskonu | Collector
Hlaut 13 ára dóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni og sambýliskonu
Fréttastofa RÚV

Hlaut 13 ára dóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni og sambýliskonu

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á miðvikudaginn karlmann í 13 ára fangelsi, þar af átta fyrir sérlega gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson héraðssaksóknari. Ofan á dóminn bætast fimm ár sem hann hlaut skilorðsbundið fyrir brot gegn móður hennar fyrir tveimur árum. Maðurinn var ákærður fyrir fjölda brota gegn stúlkunni, þar á meðal tólf brot sem falla undir lagaákvæði um nauðgun. Hann var að auki ákærður fyrir að hafa ítrekað áreitt stúlkuna kynferðislega. Hinn dæmdi hefur áður hlotið dóm fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot. Fyrir tveimur árum var hann sakfelldur fyrir að brjóta á sambýliskonu sinni, móður stúlkunnar. Móðirin baðst vægðar fyrir hans hönd á sínum tíma og féllst dómarinn á að skilorðsbinda dóminn. Fátítt er að þung refsing fyrir jafn alvarleg brot sé bundin skilorði nema þá að langt sé um liðið, sakborningurinn ungur eða alvarlegur galli hafi verið á málsmeðferðinni. Í umræddu máli voru sex ár liðin frá elsta brotinu og eitt og hálft ár frá því nýlegasta. Verjandi mannsins segir enn til skoðunar hvort áfrýja eigi málinu. Dómurinn hafi fallist á neitun hans að hluta til en maðurinn hafi að langstærstu leyti játað brotin eða játað þau að hluta.

Go to News Site