Collector
Hafði töluverðar áhyggjur að komast ekki til Færeyja í gær | Collector
Hafði töluverðar áhyggjur að komast ekki til Færeyja í gær
Fréttastofa RÚV

Hafði töluverðar áhyggjur að komast ekki til Færeyja í gær

Þrátt fyrir að flugi Icelandair til Færeyja í gær hefði verið aflýst tókst íslenska kvennalandsliðinu í handbolta engu að síður að komast á áfangastað í gær. Ísland mætir færeyska landsliðinu í mikilvægum leik í undankeppni EM á morgun. „Fluginu hjá Icelandair í gærmorgun var auðvitað bara frestað vegna veðurs. En sem betur fer flaug Atlantic Airways yfir með okkur, þannig við vorum komin yfir einhverjum tveimur klukkutímum á eftir áætlun. En þetta reddaðist allt saman,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta þegar RÚV ræddi við hann í hádeginu. Var farinn að reikna með að gista í Reykjanesbæ En var Arnar farinn að hafa áhyggjur í gær? „Já, ég skal viðurkenna það að ég hafði orðið töluverðar áhyggjur af þessu og var kannski ekki orðinn neitt alltof bjartsýnn að þetta gengi upp. Ég var farinn að sjá fram á það að við þyrftum jafnvel að vera eina nótt í Reykjanesbæ. En sem betur fer reddaðist þetta og það fer vel um okkur í Færeyjum,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari Íslands nú áðan. Landsliðið dvelur nú í Þórshöfn og æfir þar í dag en á morgun mætast Færeyjar og Ísland klukkan sex í undankeppni EM. Ísland hefur aðeins tvö stig af átta mögulegum í undankeppninni eftir heimasigur á Svartfjallalandi í mars. Ísland tapaði útileiknum gegn Svartfellinum og fyrir Færeyjum á Íslandi í haust og á móti Portúgal ytra. Íslenskur sigur á morgun afar mikilvægur Þar sem Ísland er á botni riðilsins þegar tvær umferðir eru eftir væri sigur á móti Færeyjum annað kvöld kærkominn ætli Ísland sér inn á annað Evrópumótið í röð og þar með fjórða stórmótið í röð. Vinni Færeyjar leikinn annað kvöld þarf Ísland að treysta á að Svartfjallaland vinni Portúgal á fimmtudag og svo þyrfti Ísland samt líka að vinna Portúgal á Ásvöllum í Hafnarfirði á sunnudaginn. Arnar landsliðsþjálfari er vel meðvitaður um mikilvægi leiksins annað kvöld. „Við gerum okkur alveg grein fyrir því. Við erum á leið í hörku leik við gott lið. En við þurfum eins og alltaf að spá í því hvað við erum að gera og horfa í okkar frammistöðu, og það er svona það sem við erum að búa okkur undir,“ sagði Arnar Pétursson við RÚV í dag. Leikur Færeyja og Íslands annað kvöld hefst klukkan 18:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2. Upphitun í Stofunni verður frá klukkan 17:35.

Go to News Site