Fréttastofa RÚV
Akureyringar og aðrir á Norðurlandi bundu vonir við að Nice Air færi á flug sem fyrst en í svari félagsins til fréttastofu er sagt að það verði ekki fyrr en í fyrsta lagi í lok október. Ástandið í Mið-Austurlöndum hafi gert út um vonir um flug í sumar. Upphaflega átti að fljúga jómfrúarferð Nice Air 2.0, eins og Martin Michael framkvæmdastjóri kallaði hana, þann 19. febrúar. Hætt var við þá ferð sökum dræmrar eftirspurnar og í tilkynningu frá félaginu var tekið fram að meiri tíma þyrfti í undirbúning. Verið er að skoða hvort flogið verði beint frá Akureyri í haust en félagið er með fleiri áætlanir um flugferðir á öðrum stöðum í Evrópu og því ekkert staðfest í þeim efnum. Í tilkynningu frá félaginu var ýjað að því að það hefði ekki lagt árar í bát og stefndi á flug beint frá Akureyri á næstu misserum. Nice Air fór sína fyrstu ferð í júní 2022 en var tekið til gjaldþrotaskipta árið eftir, eftir að hafa verið starfandi í tæpt ár. Félagið ætlaði fyrst að bjóða upp á flug frá Akureyri til Tenerife, Danmerkur og Bretlands en vegna leyfisvandræða gekk flugið til Bretlands aldrei upp. Þjóðverjinn Martin Micheal endurvakti síða félagið núna í desember, Akureyringum til töluverðrar gleði. Hins vegar hefur félagið ekki enn hafið sig til flugs þrátt fyrir vilja félagsins og framsæknar áætlanir.
Go to News Site