Fréttastofa RÚV
„Heil siðmenning deyr í kvöld“ nema Íranar ákveði að semja við Bandaríkin, segir Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann birti færslu á Truth Social þar sem hann var töluvert harðorðari gagnvart Írönum en áður. Átök Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hafa staðið síðan í lok febrúar og ekki er útlit fyrir að þeim linni á næstunni þrátt fyrir friðarumleitanir. Trump hefur gefið Írönum frest þar til í kvöld til að semja og opna Hormússund. „Heil siðmenning deyr í kvöld og mun aldrei snúa aftur. Ég vil ekki að það gerist, en það gerist ábyggilega,“ segir í færslu Trumps. Hann kveðst vongóður um að eitthvað jákvætt komi úr stjórnarskiptum í Íran. Hann hélt því fram að ný stjórn væri þegar tekin við. Hún væri önnur, klárari og ekki skipuð öfgamönnum. Klerkastjórnin er enn við völd í Íran og forseti Írans situr enn. Mojtaba Khamenei tók við sem æðstiklerkur Írans eftir að faðir hans féll í árás Ísraela og Bandaríkjanna. „Hver veit? Við komumst að því í kvöld, einu mikilvægasta augnabliki í langri og flókinni sögu heimsins. 47 ára tíma kúgunar, spillingar og dauða verður senn lokið. Guð blessi Írana.“
Go to News Site