Fréttastofa RÚV
Alvarlegt bílslys varð á hringveginum í Mývatnssveit síðdegis og tveir hafa verið fluttir á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Annar þeirra er sagður alvarlega slasaður. Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um slysið klukkan 12:45. Þá hafði bíll farið út af hringveginum við Neslönd, norðvestan við Mývatn. Tveir voru í bílnum og þurftu viðbragðsaðilar að nota björgunarklippur til að ná öðrum þeirra úr bílnum. Umferðartafir við Mývatn Vegfarendum er bent á að ferðast um vegina sunnan- eða austan við Mývatn á meðan vinna á vettvangi stendur yfir, en lögregla er við störf á veginum norðan- og vestan vatnsins. Viðbragðsaðilar frá Þingeyjarsveit, Húsavík og Akureyri fóru á vettvang. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um líðan fólksins. Fréttin verður uppfærð.
Go to News Site