Collector
Sjómannafélag Íslands boðar verkföll í næstu viku | Collector
Sjómannafélag Íslands boðar verkföll í næstu viku
Fréttastofa RÚV

Sjómannafélag Íslands boðar verkföll í næstu viku

Félagsmenn Sjómannafélags Íslands hafa boðað tvö verkföll í næstu viku. Formaður félagsins segir að tryggja verði stöðu íslenskra farmanna og bæta kjör hafnarverkamanna. Vinnustöðvunin tekur til Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss, skipa Eimskipafélagsins, dagana tólfta til sextánda apríl. Samningar farmanna hafa verið lausir frá áramótum. Vilja tryggja stöður íslenskra farmanna Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, segir aðgerðirnar snúast um að hásetar og bátsmenn haldi vinnunni. „Það er nú aðallega það að við erum að reyna að tryggja stöður íslenskra farmanna þar sem útgerðin hefur í auknum mæli verið að ná sér í ódýrt vinnuafl og ýta okkar fólki, sem sagt Íslendingum eða mönnum á íslenskum kjarasamningum, af skipunum,“ segir Jónas. „Eimskipafélagið er með þrjú skip með Íslendingum og einhver sex eða sjö með útlendingum og eiga hluta af skipunum sjálfir með þýskan lepp til að komast upp með það að manna þá ekki Íslendingum.“ Vinnustöðvunin er fyrsta skrefið Sjómannafélaginu hefur ekki orðið ágengt í viðræðum við Eimskipafélagið fram til þessa og segir Jónas að þess vegna hafi verið boðað til vinnustöðvunar. „Nú á það alveg eftir að koma í ljós hvort þeir hreyfi sig eitthvað til móts við okkur eða ekki. Ef ekki þurfum við að boða aðra vinnustöðvun og leita þá aðstoðar félaga okkar í útlöndum. Það er næsta skref á eftir.“ Samningar hafnarverkamanna hafa verið lausir í tæp tvö ár, þeir eru í sérstakri deild innan sjómannafélagsins. Vinnustöðvun þeirra er boðuð þrettánda til fimmtánda apríl. Hún tengist ekki stöðvun háseta og bátsmanna. Þar er tekist á um kaup og kjör segir Jónas.

Go to News Site