Collector
Safnað fyrir hljóðfærum í Hvolsskóla | Collector
Safnað fyrir hljóðfærum í Hvolsskóla
Fréttastofa RÚV

Safnað fyrir hljóðfærum í Hvolsskóla

Miðvikudaginn 8. apríl verður blásið til styrktartónleika í Midgard á Hvolsvelli en tilgangur tónleikanna er að safna fyrir nýjum hljóðfærum fyrir tónmenntastofu Hvolsskóla. Tónlistarstarf innan og utan skólans er bæði mikið og fjölbreytt, en mörg þeirra hljóðfæra sem nú eru í notkun eru farin að láta á sjá. Uppfærsla á tækjabúnaði er því orðin tímabær til að tryggja að nemendur hafi áfram aðgang að góðum hljóðfærum til að rækta tónlistarhæfileika sína. Það eru nemendur á elsta stigi Hvolsskóla sem munu stíga á stokk og halda uppi fjörinu, en þeim til aðstoðar verður Ingibjörg Erlingsdóttir tónmenntakennari. Aðstandendur tónleikanna hvetja sveitunga til að fjölmenna og styðja við bakið á blómlegu tónlistarstarfi barna og unglinga í sveitarfélaginu. Jafnframt er kallað eftir stuðningi frá atvinnulífinu.

Go to News Site