Collector
Gagnrýnir málflutning Bandaríkjaforseta | Collector
Gagnrýnir málflutning Bandaríkjaforseta
Fréttastofa RÚV

Gagnrýnir málflutning Bandaríkjaforseta

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segist vona að orð Donalds Trump Bandaríkjaforseta um hernaðaraðgerðir á gríðarlegum skala séu innantómar hótanir. Málflutningur Trump er að hans mati óboðlegur. Þetta skrifar þingmaðurinn á Facebook-síðu sína. Bandaríkjaforseti skrifaði fyrr í dag á Truth Social að heil siðmenning yrði þurrkuð út í kvöld ef Íranir semji ekki við Bandaríkjamenn. Átök Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hafa staðið síðan í lok febrúar og ekki er útlit fyrir að þeim linni á næstunni þrátt fyrir friðarumleitanir. Trump hefur gefið Írönum frest þar til í kvöld til að semja og opna Hormússund. „Allra helst vonar maður að þetta séu innantómar hótanir Bandaríkjaforseta sem er kominn í krappa stöðu og að í staðinn setjist menn við samningaborðið, en það afsakar aldrei þennan óboðlega málflutning,“ skrifar Snorri. Hann segir að vonbrigði og skilningsleysi hljóti að einkenna tilfinningar margra kjósenda Trumps. „Sem óskuðu sér breyttrar nálgunar á landamærum, betri efnahags og minna woke-brjálæðis,“ skrifar Snorri sem bendir á að Trump hafi boðað friðarnálgun í stað hernaðarinngripa. „Ekki aðeins hafa þessar vonir brugðist, heldur er farið af fullum þunga í þveröfuga átt og frumkvæði haft að stigmagnandi styrjaldarátökum.“

Go to News Site