Collector
Í dag: Ísland þarf sigur gegn Færeyjum | Collector
Í dag: Ísland þarf sigur gegn Færeyjum
Fréttastofa RÚV

Í dag: Ísland þarf sigur gegn Færeyjum

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Færeyjum í undankeppni EM 2026 í dag. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er sýndur beint á RÚV 2. Riðillinn er afar jafn og þarf Ísland nauðsynlega á góðum úrslitum að halda í þessum landsleikjaglugga. Færeyjaleikurinn er ytra og sunnudaginn 12. apríl tekur Ísland á móti Portúgal. Ísland er sem stendur í neðsta sæti riðilsins sem er þó nokkuð jafn. Efstu tvö liðin fara áfram en einnig á Ísland möguleika á því að fara áfram sem eitt af liðunum með besta árangur í þriðja sæti. Staðan í riðlinum Svartfjallaland - 6 stig - +21 í markatölu Færeyjar - 4 stig - mínus 2 í markatölu Portúgal - 4 stig - mínus 8 í markatölu Ísland - 2 stig - mínus 11 í markatölu Eini sigur Íslands hingað til kom gegn sterku liði Svartfellinga en Ísland tapaði naumlega gegn Færeyjum, 22-24, og Portúgal, 26-25, í fyrstu tveimur umferðunum. Um tíma leit út fyrir að veðrið myndi stöðva för íslenska liðsins til Færeyja.

Go to News Site