Fréttastofa RÚV
Hvalfjarðargöngin verða lokuð frá tíu í kvöld og fram til sex í fyrramálið, og þannig verður það fimm nætur í viku næstu sjö vikurnar. Lokunin er öll kvöld nema föstudags- og laugardagskvöld. Engri umferð verður hleypt í gegnum göngin á meðan lokun stendur nema sjúkrabílum og öðrum forgangsakstri. Vegagerðin hefur verið gagnrýnd fyrir það með hve skömmum fyrirvara var tilkynnt um lokunina, eða á miðvikudaginn í síðustu viku. Í dag, sama dag og fyrsta lokunin er, fundaði Vegagerðin með bæjaryfirvöldum á Akranesi. Forseti bæjarstjórnar á Akranesi segir að fullur skilningur sé á framkvæmdinni og að ekki sé hægt að hleypa umferð í gegn á meðan unnið er í göngunum. Skammur fyrirvari komi þó mjög illa við vaktavinnufólk, hvort sem það býr á Akranesi eða á höfuðborgarsvæðinu. Helmingur ljósmæðra býr á höfuðborgarsvæðinu Hrafnhildur Ólafsdóttir, deildarstjóri á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, segir að lokanirnar muni hafa mikil áhrif á starfsemi deildarinnar. „Um helmingur ljósmæðra sem starfa á deildinni er á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru sjö ljósmæður sem búa hinum megin við göngin og þessi tímasetning að loka göngunum klukkan hálf tíu á kvöldin kemur okkur bara mjög illa. Vaktaskiptin eru klukkan 11 þannig að þetta verður þannig að næturvaktin þarf þá að koma snemma og kvöldvaktin kemst ekki heim nema að keyra fjörðinn,“ segir Hrafnhildur. „Þessu er skellt á mann með engum fyrirvara“ Hrafnhildur segir að erfitt sé að breyta vaktafyrirkomulagi á fæðingardeild með svo skömmum fyrirvara. „Auðvitað reynum við frá degi til dags að redda málunum en þessu er skellt á mann með engum fyrirvara.“ Heldur þú að það verði einhver röskun á starfseminni hérna? „Ég vona ekki, við reynum að gera allt til að það verði ekki en eins og ég segi við tökum bara einn dag í einu. Svo eru líka margar konur af höfuðborgarsvæðinu sem koma og fæða hjá okkur svo það er líka röskun fyrir þær konur,“ segir Hrafnhildur. Lét taka sig af vöktum á Landspítalanum næstu vikur Ósk Hjartardóttir starfar sem hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands og er í hlutastarfi á Landspítalanum. „Ég er að vinna á Landspítalanum í 20 prósenta stöðu. Og þar með get ég ekki tekið kvöldvaktir næstu sjö vikur nema að þurfa keyra Hvalfjörðinn.“ Hún lét því taka sig af öllum vöktum á Landspítalanum á þessu tímabili. „Þetta var tilkynnt 1. apríl svo við héldum öll að þetta væri aprílgabb, eða það var mikið í umræðunni, en þetta er náttúrulega heldur stuttur fyrirvari, fólk getur ekki með viku fyrirvara tekið sig af öllum vöktum,“ segir hún.
Go to News Site