Collector
Bayern München og Arsenal höfðu betur | Collector
Bayern München og Arsenal höfðu betur
Fréttastofa RÚV

Bayern München og Arsenal höfðu betur

8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta hófust í kvöld með tveimur leikjum. Arsenal sótti Sporting heim til Lissabon. Kai Havertz skoraði eina mark leiksins fyrir gestina á 1. mínútu uppbótartíma. Í Madrid var Bayern München í heimsókn hjá Real Madrid. Luiz Diaz og Harry Kane komu Bæjurum í 2-0 áður en Kylian Mbappe minnkaði muninn í 2-1 og þar við sat. Síðari leikir liðanna eru 15. apríl og þá í München og Lundúnum. Á morgun mætast Barcelona og Atletico Madrid annars vegar og PSG og Liverpool hins vegar. Leikmenn Arsenal fagna marki Kai Havertz í Lissabon.AP / Armando Franca

Go to News Site