Collector
FH vann fyrstu orrustuna í bardaganum um Hafnarfjörð | Collector
FH vann fyrstu orrustuna í bardaganum um Hafnarfjörð
Fréttastofa RÚV

FH vann fyrstu orrustuna í bardaganum um Hafnarfjörð

FH-ingar fagna sigri.Rúv / Mummi Lú FH leiðir 1-0 gegn Haukur í einvígi liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta. FH-ingar unnu 27-21 sigur en leikurinn var lengst af afar jafn. Haukar leiddu með fjórum mörkum, 4-8, eftir 17 mínútur. Síðan var leikurinn aftur jafn en Haukar leiddu með einu marki í hálfleik, 11-12. Þegar tíu mínútur voru eftir leiddi FH 19-18. Þá tóku heimamenn nær öll völd á vellinum og unnu að loum sex marka sigur. Ómar Darri Sigurgeirsso var markahæstur með átta mörk hjá FH og Garðar Ingi Sindrason var með sjö mörk auk þriggja stoðsendinga. Hjá Haukum var Freyr Aronsson með sjö mörk og þrjár stoðsendingar.

Go to News Site