Fréttastofa RÚV
Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum, segist viss um að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni ekki standa við hótanir sínar frá því fyrr í dag. Hótanirnar sneru að því að siðmenning Íran liði undir lok nema stjórnvöld þar í landi gæfu eftir kröfum Trump, semdu um frið og opnuðu Hormússund aftur fyrir olíuflutningum. „Ég vil gefa mér það að Trump framkvæmi ekki þessi lýsingarorð í dag, ég er alveg viss um það reyndar,“ segir Albert Jónsson. Trump hefur gefið Írönum frest til miðnættis að íslenskum tíma til að opna Hormússund ella muni hann láta eldi og brennisteini rigna yfir landið. Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, segir óljóst hvað verði af hótunum Trump. „Við þurfum kannski að leyfa nóttinni að líða og sjá hvað gerist í nótt og hvað menn meina og hvernig þeir ætla að fylgja eftir þessum yfirlýsingum.“ Erfitt er að segja til um það hvort Íranar gangi að afarkostum forsetans og opni Hormússund í kvöld, Albert segir það alfarið velta á ákvörðunum Írana. Kjartan segir að Trump takist að einhverju leyti að láta írönsk stjórnvöld „líta út fyrir að vera sá aðili í þessum deilum sem er með vit í kollinum“. Hann segir það vera ákveðið afrek út af fyrir sig. Nánar var fjallað um málið í Kastljósi kvöldsins. Fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum telur ólíklegt að Donald Trump Bandaríkjaforseti standi við hótanir sínar frá því fyrr í dag.
Go to News Site