Collector
Fagna vopnahléi en þrýsta á um varanlegan frið | Collector
Fagna vopnahléi en þrýsta á um varanlegan frið
Fréttastofa RÚV

Fagna vopnahléi en þrýsta á um varanlegan frið

Ráðamenn víða um heim hafa fagnað vopnahléssamkomulaginu sem náðist í gær milli Bandaríkjanna og Írans. Þeir leggja áherslu á að leysa verði úr deilunum með friðsamlegum hætti og ná varanlegu samkomulagi um frið. Nokkrir hafa gagnrýnt Ísraela fyrir að halda áfram árásum í Líbanon. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði að með vopnahléssamkomulaginu skapaðist tækifæri til að draga úr hótunum, stöðva eldflaugaárásir, hefja siglingar á ný og gefa færi á viðræðum um varanlegt friðarsamkomulag. Hún hét stuðningi ESB við friðarferlið. Badr Abdelatty, utanríkisráðherra Egyptalands, lýsti ánægju sinni með vopnahléssamkomulagið og sérstaklega því að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að gefa færi á því að semja um frið. Mao Ning, talskona kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði þarlend stjórnvöld fagna vopnahléinu. Hún sagði að Kínastjórn myndi vinna að því að tryggja frið í Mið-Austurlöndum. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, lýsti þeirri trú sinni að Bandaríkjamenn og Íranar virtu vopnahléið að fullu og gæfu færi á friðarviðræðum. Hann lýsti líka von sinni um að vopnahléið næði einnig til Líbanons. Ekki er þó víst að Macron verði að ósk sinni því Ísraelsher hélt áfram árásum sínum á Líbanon í morgun og Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt að vopnahléið eigi ekki við um Líbanon. Jose Manuel Albares, utanríkisráðherra Spánar, sagði í morgun að það væri óásættanlegt að Ísrael héldi áfram árásum sínum á Ísrael. Pedro Sanchez forsætisráðherra hafði áður lýst vopnahléinu sem góðum tíðindum. Hann sagðist þó ekki ætla að hrósa þeim sem kveiktu elda fyrir að mæta að lokum með vatnsfötu. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sem er á leið til fundar við þjóðarleiðtoga við Persaflóa, sagði að Bretar og samstarfsþjóðir þeirra myndu gera allt í þeirra valdi til að styðja við og viðhalda vopnahléi. Hann lýsti von um að varanlegur friður kæmist á og að opnað yrði fyrir skipaumferð um Hormússund. Flugmálayfirvöld í Írak tilkynntu í morgun að þau myndu opna lofthelgi landsins fyrir farþegaflugi. Henni var lokað vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.

Go to News Site