Fréttastofa RÚV
Ísland og Færeyjar hafa mæst þrisvar frá því í október. Færeyjar unnu fyrsta leikinn en Ísland þá síðari tvo. Arnar segist læra eitthvað af öllum leikjunum, sérstaklega þeim fyrsta. „Við auðvitað spiluðum mjög töff leik við þær í haust sem við töpuðum og ég veit, og er alveg sannfærður um það, að við lærðum heilan helling af þeim leik,“ sagði Arnar á æfingu liðsins í Færeyjum í gærkvöldi. Arnar segir alveg ljóst að færeyska liðið sé mjög gott. Þær séu sterkar varnarlega, með góða markmenn og öfluga sóknarleikmenn. „Gæðin eru mikil í þessu liði, það er verið að vinna frábært starf hérna í Færeyjum og við erum að fara að mæta alveg hörkuliði,“ segir Arnar. Leikur Íslands og Færeyja hefst klukkan 18 í dag og er sýndur beint á RÚV 2. Upphitun hefst í Stofunni klukkan 17:35.
Go to News Site