Fréttastofa RÚV
Rapparinn Yasiin Bey, sem betur er þekktur undir nafninu Mos Def, treður upp á Íslandi í næsta mánuði. Menningarhreyfingin Liveproject er að baki tónleikunum en hún hefur staðið fyrir fjölda tónleika hérlendis síðustu misseri, nú síðast í mars þegar Havoc úr Mobb Deep og Big Noyd komu fram í KR-heimilinu. Tónleikarnir verða haldnir 9. maí í Gamla bíói. Hugvekjandi hip-hop Í fréttatilkynningu frá Liveproject segir að Mos Def sé með áhrifamestu tónlistarmönnum sinnar kynslóðar og hornsteinn concious hip-hop senunnar, sem má þýða sem hugvekjandi hip-hop. Sá angi rapptónlistar hverfist að miklu leyti um samfélagsrýni, stjórnmálahugmyndir, heimspeki og boðskap. Allt á þetta vel við tónlist Mos Defs. Rapparinn kemur frá New York sem er fæðingarstaður hip-hopsins. Í upphafi ferilsins var Mos Def duglegur að rappa í frjálsu flæði eða svokölluðu freestyle . Hann þykir mjög góður í að spinna rímur á staðnum og er raunar sérstaklega þekktur fyrir textaskrif sín. „Hann sló fyrst í gegn seint á 10. áratugnum sem hluti af hip-hop dúóinu Black Star ásamt Talib Kweli. Með tímamótaplötum á borð við Black on Both Sides og The New Danger mótaði Mos Def nýja sýn á það hvað hip-hop gæti verið: hugmyndaríkt, pólitískt og listilega djúpt. Ferill hans spannar samstarf við listamenn á borð við Kanye West, Hi Tek, Madlib og J Dilla,“ segir í fréttatilkynningunni. Þá hefur Mos Def gert það nokkuð gott í Hollywood. Hann lék til að mynda í kvikmyndunum Be Kind Rewind, The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy og The Italian Job (endurgerðinni frá 2003) og í þáttaröðunum Dexter og The Boondocks, þar sem hann fór með hlutverk rapparans Gangstalicious. Hann hefur þó dregið sig til hlés sem leikari og hefur ekki leikið í yfir 10 ár. Alklár rímnasmiður Líkt og tíðkast gjarnan í rappheiminum þá er Mos Def maður margra nafna. Skírnarnafn hans er Dante Terrell Smith en þegar hann kom fram á sjónarsviðið var það undir nafninu Mos Def sem er stytting á frasanum „most definitely“ og má einfaldlega þýða á íslensku sem „alveg klárlega“. Mos Def mætti þá jafnvel þýða sem Alklár, nafnið fer honum ágætlega. Það var síðan árið 2011 sem rapparinn ákvað að breyta sviðsnafni sínu í Yasiin Bey. Nafnið hefur skírskotun til Kóransins en Mos Def hefur verið múslimatrúar síðan hann var ungur. „Listamannsnafnið Yasiin Bey markar ekki endurnýjun ímyndar Mos Def heldur afstöðu. Nafnið endurspeglar þá hugsjón sem hefur alltaf einkennt feril hans: að nota tónlist sem miðil fyrir merkingu, sannleika og menningarlega ábyrgð,“ segir í fréttatilkynningunni. Spilaði næstum í Laugardalnum í fyrra Síðasta sumar stóð til að Mos Def og Havoc úr Mobb Deep kæmu fram á hátíðinni LÓU festival í Laugardal í Reykjavík. Þegar hátíðinni var aflýst var greint frá því að samið hefði verið við suma listamenn sem áttu að koma fram á hátíðinni um að spila síðar hérlendis. Nú er ljóst að átt var við þá Mos Def og Havoc.
Go to News Site