Fréttastofa RÚV
Lárus Bjarnason, lögfræðingur og fyrrverandi sýslumaður á Austurlandi og þar áður Norður-Múlasýslu, skipar efsta sætið á framboðslista Miðflokksins í Múlaþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Miðflokksdeild Múlaþings er búin að samþykkja framboðslista sinn. Auk Lárusar eru í efstu sætum listans þeir Hannes Karl Hilmarsson afgreiðslustjóri og Stefán Bragi Birgisson, bóndi og götumálari.
Go to News Site