Fréttastofa RÚV
Veðurstofunni barst í gær fjöldi tilkynninga um ofanflóð í hlýindum og leysingum. Víða um land koma vegir illa undan snjó og sums staðar hefur klæðning skemmst í flóðum eða óveðri. Umferðarkort Vegagerðarinnar er skrautlegt á að líta í dag – eins og reyndar marga síðustu daga eftir lætin í veðrinu kringum páskana. Svona leit kortið út rétt fyrir hádegi: Ótal upphrópunarmerki og aðrar viðvaranir eru á kortinu vegna ýmiss konar skemmda, sérstaklega á vegum á Vestfjörðum og landinu norðanverðu. Á Vesturlandi koma vegir líka illa undan snjónum og varað er við holóttum vegum um nær allan landshlutann, og víðar um landið. Það hefur verið hlýtt undanfarinn sólarhring eftir talsverða snjókomu dagana á undan og því miklar leysingar. Vegfarendur eru beðnir að fara með gát nærri bröttum hlíðum og að skoða stöðu vega áður en haldið er af stað. Vatn rennur yfir vegi á nokkrum stöðum um landið norðvestanvert og á Vestfjörðum. Lögreglan á Norðurlandi vestra varaði sérstaklega við aðstæðum í þeirra umdæmi í gærkvöldi: Flest flóð á Austfjörðum og áfram talsverð hætta þar í dag Heiður Þórisdóttir, sérfræðingur á ofanflóðavakt Veðurstofunnar, segir að ótal tilkynningar hafi borist um ofanflóð undanfarinn sólarhring. Flest þeirra flokkist sem vot snjóflóð. „Flest á Austfjörðum, þar sem hefur rignt mest og hlýnað hraðast. Þessi flóð hafa hvergi verið neitt mjög stór, bara svona miðlungsstór og lítil. Við fengum eina tilkynningu um krapaflóð í Gilsfirði á Vesturlandi og grjóthrun á nokkrum þekktum stöðum.“ Einhver flóðanna fóru yfir vegi - þar á meðal krapaflóðið í Gilsfirði - en engin þeirra hafa ógnað byggð. Heiður segir hættuna minni í flestum landshlutum í dag. Austfirðir eru þó enn merktir með appelsínugulum lit á korti Veðurstofunnar, sem þýðir að þar er töluverð hætta á ofanflóðum. Nokkur hætta er á suðvesturhorninu, Vestfjörðum og við Eyjafjörð.
Go to News Site