Fréttastofa RÚV
Lögreglumaðurinn Björn Ásgeir Sumarliðason leiðir H-listann – lista framfarasinna í sveitarfélaginu Stykkishólmi. Listinn var kynntur á fundi flokksins í gær. Bæjarstjóraefni listans er Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson sem hefur verið bæjarstjóri síðastliðin 8 ár. Annað sæti listans skipar Steinunn I. Magnúsdóttir framhaldsskólakennari og það þriðja Mattías Arnar Þorgrímsson skipstjóri. „Ég er tilbúinn að vinna áfram að uppbyggingu þess góða samfélags sem sveitarfélagið Stykkishólmur er með þeim öfluga hópi sem skipar H-listann. Ég hlakka til að hitta og ræða við íbúa, heimsækja fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu og hlusta á þeirra sjónarmið,“ er haft eftir Birni Ásgeiri, oddvita listans, í tilkynningu framboðsins.
Go to News Site