Collector
NRK neitar að ný sería af SKAM sé á leiðinni | Collector
NRK neitar að ný sería af SKAM sé á leiðinni
Fréttastofa RÚV

NRK neitar að ný sería af SKAM sé á leiðinni

Uppþot varð í netheimum í dag þegar dagsetningin 17. apríl 2026 birtist á Facebook-síðu norsku sjónvarpsþáttanna SKAM. Þættirnir nutu mikilla vinsælda en þeir fjölluðu um hóp unglinga í framhaldsskóla í Osló í Noregi, hversdagslíf þeirra, sorgir og sigra. Mynd með dagsetningunni 17.04.26 birtist á Facebook-síðu þáttarins í dag og vakti von hjá aðdáendum um að framhaldsþættir væru mögulega á leiðinni. Norska ríkissjónvarpið , NRK, sem framleiddi og sýndi þættina, neitar því að framhald sé á leiðinni. „NRK stjórnar ekki þessari Facebook-síðu. Það er ekki satt að það verði framhald á þáttunum,“ segir Marianne Furevold, ritstjóri sjónvarpsþátta. Fjórar þáttaraðir voru gerðar og snerist hver og ein um eina persónu í vinahópnum. Fyrsti þátturinn var frumsýndur 25. september 2015 og lokaþátturinn var sýndur 24. júní 2017. Þátturinn var endurgerður í fjölda landa, meðal annars Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu og Bandaríkjunum.

Go to News Site