Collector
Heuermann játaði að hafa orðið átta konum að bana | Collector
Heuermann játaði að hafa orðið átta konum að bana
Fréttastofa RÚV

Heuermann játaði að hafa orðið átta konum að bana

Bandaríkjamaðurinn Rex Heuermann gekkst í dag við því að hafa myrt átta konur á árunum 1993 til 2010. Heuermann, sem var giftur íslenskri konu og starfaði sem arkitekt um árabil, hafði áður neitað sök í málinu. Heuermann viðurkenndi fyrir dómi að hafa kyrkt konurnar. Hann hafði verið ákærður fyrir að hafa myrt sjö konur en játaði einnig áttunda morðið fyrir dómi sem ekki var hluti af ákærunni og hafði lengi verið óupplýst. Ættingjar fórnarlamba Heuermann voru viðstaddir játninguna í dómsal í New York ásamt fjölmiðlamönnum og grétu fjölskyldurnar þegar játningin var lesin upp. Samkvæmt upplýsingum frá saksóknurum vestanhafs á Heuermann að hafa samið um lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn með því að játa verknaðinn. Að sögn bandarískra lögregluyfirvalda voru morðin þaulskipulögð með kerfisbundnum og nákvæmum hætti. Morðin áttu sér yfir sautján ára skeið og var það ekki fyrr en einhver fórnarlambanna fundust við Gilgo-ströndina á Long Island í New York-fylki árið 2010 að umfangsmikilli rannsókn var hrint af stað. Rannsókn lögreglu stóð yfir í áratug og var Heuermann handtekinn fyrir utan skrifstofu sína á Manhattan í júlí 2023 þegar DNA-sönnunargögn bendluðu hann við rannsóknina. Fyrrverandi eiginkona Rex Heuermann er íslensk og heitir Ása Guðbjörg Ellerup. Ása hefur verið búsett í Bandaríkjunum nánast alla tíð. Hún er ekki talin tengjast málinu.

Go to News Site