Fréttastofa RÚV
Jasveen Sangha, betur þekkt sem „Ketamín-drottningin“, hefur hlotið 15 ára fangelsisdóm fyrir að selja Friends-leikaranum Matthew Perry eiturlyf sem leiddu til andláts hans. Sangha neitaði upphaflega sök en játaði síðar fimm af níu ákæruliðum, þar á meðal að hafa selt Perry ketamín sem leiddi til dauða hans. Fimm voru ákærð í tengslum við dauða Perry Sangha, tveir læknar sem útveguðu honum lyf, aðstoðarmaður hans og kunningi hans. Læknarnir tveir, þeir Salvador Plasencia og Mark Chavez, hafa játað sig seka. Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í Los Angeles í október 2023. Krufning leiddi í ljós að Perry hafði látist af völdum ketamínneyslu, drukknunar og kransæðastíflu. Honum hafði verið ávísað ketamíni en hafði glímt við fíknisjúkdóma árum saman.
Go to News Site