Fréttastofa RÚV
Krían er komin til landsins eftir vetrarsetu í hlýrra loftslagi. Raunar er krían furðu snemma á leiðinni en hún er 11 dögum á undan fyrsta skráða komutíma sínum sem var áður 19. apríl. Tvær kríur sáust á flugi við Grindavík í dag og náði fuglaáhugamaðurinn Eyjólfur Vilbergsson að smella mynd af annarri. Einnig sáust kríur við Stokkseyri og Eyrarbakka. Jóhann Óli Hilmarsson segir að snemmkomu kríunnar megi rekja til veðurskilyrða seinustu daga. „Lægðagangur frá austurströnd N-Ameríku hefur verið óvenju tíður undanfarið og krían kemur einmitt upp með austurströnd Ameríku frá vetrarstöðvunum í Suður-Íshafinu á vorin. Fyrst upp með S-Ameríku og svo þeirri nyrðri.“ Hann segir að lægðir seinustu daga hafi eflaust hjálpað við að flýta för hennar en að allt megi svo eflaust rekja til loftslagsbreytinga og gróðurhúsaáhrifa.
Go to News Site