Fréttastofa RÚV
Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði að hann og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefðu átt opnar og hreinskilnar umræður á fundi sínum í Hvíta húsinu í gærkvöld. Trump væri augljóslega vonsvikinn með margar bandalagsþjóðir í NATO en fundurinn hefði gengið vel. Rutte sagði þetta í viðtali við fréttastofuna CNN eftir fund þeirra Trumps. „En á sama tíma gat ég einnig bent honum á þá staðreynd að mikill meirihluti Evrópuþjóða hefur aðstoðað með herstöðvum, með flutningum, með flugi yfir lofthelgi, og með því að sjá til þess að við stöndum við skuldbindingar,“ sagði Rutte. Trump hefur ekki enn tjáð sig um fundinn með Rutte við fjölmiðla en sagði í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social fyrr í kvöld að NATO hafi ekki verið til staðar þegar Bandaríkin þurftu á bandalaginu að halda. Bandalagið yrði ekki til staðar síðar ef á þyrfti að halda. „MUNIÐ EFTIR GRÆNLANDI, ÞESSU STÓRA, ILLA STJÓRNAÐA ÍSSTYKKI,“ sagði Trump í færslu sinni. Bandaríkjaforseti hefur ítrekað lýst yfir vonbrigðum sínum með skort á skuldbindingum NATO-bandamanna sinna í stríðinu gegn Íran. Hann hefur jafnvel hótað því að draga Bandaríkin alfarið úr varnarbandalaginu. Fréttin verður uppfærð.
Go to News Site