Collector
Utanríkisráðherra deildi mikilvægum upplýsingum með stjórnvöldum í Rússlandi | Collector
Utanríkisráðherra deildi mikilvægum upplýsingum með stjórnvöldum í Rússlandi
Fréttastofa RÚV

Utanríkisráðherra deildi mikilvægum upplýsingum með stjórnvöldum í Rússlandi

Ný gögn benda til þess að ungverski utanríkisráðherrann Péter Szijjártó hafi lekið upplýsingum um mikilvægan leiðtogafund Evrópusambandsins, þar sem aðildarviðræður Úkraínu voru ræddar, til stjórnvalda í Rússlandi. Þá bauðst hann einnig til að deila trúnaðarskjölum og skipulagði fund milli Viktors Orbán forsætisráðherra Ungverjalands og Vladimirs Pútíns forseta Rússlands. Þetta kemur fram í afriti af hljóðupptökum af samtölum á milli Szijjártó og Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússa. Upptökur af símtalinu eru meðal gagna í rannsókn sem sjálfstæðu rannsóknarblaðamennskufjölmiðlarnir VSquare, Frontstory, Delfi Estonia, The Insider og The Investigative Centre of Ján Kuciak hafa unnið saman, en fjölmiðillinn Euronews greinir frá rannsókninni. Bauðst til að deila trúnaðargögnum Szijjártó hringdi í Lavrov í desember 2023 til að upplýsa hann um umræður meðal leiðtoga Evrópusambandsins um hvort hefja ætti aðildarviðræður við Úkraínu. Þá eru einnig upptökur af því þegar Szijjártó hringdi í Lavrov til að skipuleggja fund milli Orbáns og Pútíns árið 2024. Ungverjaland var þá með formennsku í Evrópuráðinu og Orbán var harðlega gagnrýndur fyrir að stunda eins konar einhliða utanríkisstefnu. Szijjártó bauð Lavrov einnig gögn um aðildarviðræður Úkraínu og ESB og sagðist auðveldlega geta komið þeim áfram til hans með milligöngu ungverska sendiráðsins í Moskvu. Stutt í kosningar Szijjártó sagði í færslu á samfélagsmiðlum að birting á upptökunum væri gróf og opinber íhlutun leyniþjónustunnar. Þessar nýju upplýsingar um samskipti Szijjártó og Lavrovs koma fram aðeins nokkrum dögum fyrir þingkosningarnar í Ungverjalandi sem verða á sunnudaginn. Skoðanakannanir óháðra stofnana benda til stórsigurs Tisza-flokks Evrópusinnans Peters Magyar. Viktor Orbán mælist með minna fylgi og 16 ára valdatíð hans gæti brátt verið á enda. Þegar fyrst komst upp um upplýsingaleka Szijjártó til Lavrovs í mars sagði Magyar að þetta væru svik við ungverska og evrópska hagsmuni. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lýsti einnig yfir miklum áhyggjum af lekanum og óskaði eftir því að Ungverjar gæfu skýringar á þessum ásökunum.

Go to News Site