Collector
„Ég tek því mjög alvarlega að skrifa fyrir börn“ | Collector
„Ég tek því mjög alvarlega að skrifa fyrir börn“
Fréttastofa RÚV

„Ég tek því mjög alvarlega að skrifa fyrir börn“

Barnabókin VIÐ er eftir rithöfundinn Helen Hafgný Cova og myndhöfundinn Fanny Sissoko. Boðskapur hennar er að við eigum að taka vel á móti nýju fólki. Helen og Fanny ræddu um bókina í Hvað ertu að lesa? á Rás 1. Kynntust við gerð borðspils Þegar Fanny var að læra íslensku hannaði hún borðspil því henni fannst vanta öruggt rými til að æfa sig að tala og gera mistök. Hún bauð Helen að hjálpa sér sem hún var strax til í því hún er mikið fyrir borðspil. „Við unnum mjög vel saman og ég dáist mikið að henni þannig að þegar ég fór að hugsa um þessa bók þá var ég bara beint að hugsa til hennar,“ segir Helen. Geymir það mikilvægasta sem hún hefur að segja fyrir barnabækur Helen fæddist í Venesúela og Fanny í Frakklandi. Þær segja að í báðum þessum löndum sé mikil fjölmenning. Þær fóru að velta fyrir sér hvernig þetta væri á Íslandi og hvernig Íslendingar taka á móti nýju fólki. Mig langaði að útskýra þetta fyrir börnunum og kannski bara opna rýmið fyrir spurninguna: Hvað gerir okkur við? Og hvernig getum við verið betri? Helen segist ekki útskýra erfið málefni öðruvísi fyrir krökkum, bara á einfaldari hátt. Það hentar henni vel því íslenska er ekki móðurmál hennar. Fanny var ekki lengi að samþykkja að myndlýsa bókina. „Þetta passar svo vel við allt sem ég hef áhuga á.“ Hún lýsir mikilli fjölmenningu í París og segir hana vera mun minni hér á landi, þó að hún hafi færst í aukana frá því hún fluttist hingað. Hún þurfti að aðlagast samfélaginu á Íslandi og finnst áhugavert að velta fyrir sér hvað það er sem gerir okkur að „okkur“ og hvernig við tökum á móti fólki. Hvað þýðir að vera við? Hvað þýðir að vera Íslendingur? Hvað þýðir að vera útlendingur? Græðum alltaf á að taka vel á móti fólki Með bókinni vill Helen að krakkar viti að við töpum ekki á því þegar nýtt fólk bætist í hópinn, sama hvort það sé nýr nemandi í skólanum eða nýr íbúi í landinu. Þegar við erum að velkomna fólk með opnum örmum þá erum bara við alltaf að græða. Barnabókin VIÐ varpar fram spurningum um hvað „við“ þýðir og hvernig við getum gert betur. Hugmyndin kviknaði þegar höfundarnir fluttust til Íslands og fóru að velta fyrir sér samfélaginu. Rætt var við Helen Hafgný Cova og Fanny Sissoko í Hvað ertu að lesa? á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Go to News Site